Fréttir

true

Hljómsveitin Tíbrá rifjar upp ferilinn

Hljómsveitin Tíbrá var stofnuð árið 1975 af nokkrum gagnfræðiskólapiltum á Akranesi. Gullaldarár sveitarinnar voru á árunum um og eftir miðjan níunda áratuginn og var sveitin líklega ein eftirsóttasta sveitaballahljómsveitin í landshlutanum. Hljómsveitin hefur í gegnum tíðina verið skipuð fjölda tónlistarmanna, einkum hafa margir söngvarar komið fram með sveitinni í áranna rás. Má þar nefna Ellen…Lesa meira

true

„Okkur hefur alltaf liðið vel á Mýrunum“

Bærinn Traðir á Mýrum fékk á liðnu hausti umhverfisviðurkenningu Borgarbyggðar sem snyrtilegasta bændabýlið en þar hafa hjónin Sigurbjörg Helgadóttir og Óskar Þór Óskarsson unnið að endurbótum á undanförnum árum. Sjálf er Sigurbjörg uppalin á bænum og hafa hún og Óskar, sem á rætur sínar í Vestmannaeyjum, verið þar með annan fótinn alla sína hjúskapartíð. Nú…Lesa meira

true

Leitar lausna til að bæta megi tækni í vanþróuðum ríkjum

Halldór Gíslason, hugbúnaðarfræðingur hjá Íslandsbanka, hefur farið þrjár ferðir til fimm Afríkulanda þetta árið til að sinna hjálparstarfi á vegum Rauða krossins. Halldór er forritari og viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað í hugbúnaðardeild Íslandsbanka í samtals sjö ár. „Mig hefur alltaf langað að láta gott af mér leiða og taka þátt í hjálparstarfi, en…Lesa meira

true

„Það er allt til alls á Nesinu“

Í Grundarfirði búa hjónin Runólfur Guðmundsson og Edda Svava Kristjánsdóttir. Hann hefur stigið ölduna í hartnær hálfa öld en hún sá um börn og bú á meðan eiginmaðurinn stundaði sjóinn. Kíkt var í aðventuheimsókn til þeirra hjóna þar sem rætt var um lífið í öllum sínum fjölbreytileika; börnin, fyrirtækið og ekki síst lífið eftir sjómennskuna.…Lesa meira

true

„Ég er skáldið Jósefína“

Þegar blaðamaður hafði samband við Jósefínu Meulengracht Dietrich, skáld og mannfræðing, fyrr í mánuðinum og falaðist eftir viðtali fyrir Jólablað Skessuhorns tók hún vel í það, enda hefur margt á daga hennar drifið og frá mörgu að segja. Svo mörgu raunar að Jósefína taldi eðlilegast að jólablaðið fjallaði alfarið um hana. „Ég er skáldið Jósefína,“…Lesa meira

true

Átta brautskráðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Í gær brautskráðust átta nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust Baldvin Mattes, Konráð Ragnarsson og Patrekur Örn Gestsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðust Ármann Örn Guðbjörnsson, Daníel Husgaard Þorsteinsson og Finnbogi Þór Leifsson. Af opinni braut brautskráðust Alma Björk Clausen og Anna Halldóra Kjartansdóttir. Alma Björk Clausen hlaut hæstu einkunn…Lesa meira

true

Hjartormur greindist í innfluttum hundi

Hjartaormurinn Angiostrongylus vasorum greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins í desember og dvelur í einangrun. Um er að ræða sníkjuþráðorm. Ormasýkingin var greind af sníkjudýrafræðingum á  Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Hjartaormurinn hefur ekki greinst áður á Íslandi. Hundurinn hafði ekki sýnt einkenni sýkingar en meðhöndlun hófst um leið…Lesa meira

true

„Höfum farið gætilega því við viljum búa hér áfram“

Þau hafa smám saman verið að byggja upp ferðaþjónustu á jörð sinni, sem er rík af góðum hlunnindum, ekki síst heitu vatni. En á sama tíma tekið lítil skref, ekki viljað fara of geyst til að geta staðið við allar skuldbindingar. Kíkt var í kaffi til hjónanna í Stóra Ási í Hálsasveit, þeirra Láru Kristínar…Lesa meira

true

„Ég er ekki sjónin mín“

Stykkishólmur skartar sínu fegursta vetrarveðri þegar knúið er dyra hjá Höllu Dís Hallfreðsdóttur, hjúkrunarfræðingi sem lætur ekki sjúkdóminn Retinitis Pigmentosa (RB) aftra sér frá því að lifa lífinu lifandi. „Ég hef aldrei séð mjög vel,“ segir Halla Dís Hallfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur, í upphafi viðtals og heldur áfram, „auk RP er ég nærsýn, með sjónskekkju og fimm…Lesa meira

true

Endurminningar um farskóla í Skorradal

Vilborg Kristófersdóttir nálgast óðum nítugasta og fimmta aldursár sitt. Hún er heilsuhraust utan augnsjúkdóms sem hrjáði hana í marga áratugi en hún fékk bót á með nýjum hornhimnum árið 1988. Síðan þá hefur hún ekki kvartað undan slæmri heilsu. Blaðamaður Skessuhorns mælti sér mót við hana á köldum desembermorgni til að ræða um farskólann í…Lesa meira