Fréttir

true

Endurminningar um farskóla í Skorradal

Vilborg Kristófersdóttir nálgast óðum nítugasta og fimmta aldursár sitt. Hún er heilsuhraust utan augnsjúkdóms sem hrjáði hana í marga áratugi en hún fékk bót á með nýjum hornhimnum árið 1988. Síðan þá hefur hún ekki kvartað undan slæmri heilsu. Blaðamaður Skessuhorns mælti sér mót við hana á köldum desembermorgni til að ræða um farskólann í…Lesa meira

true

Í heimsókn hjá Guðjóni og Guðnýju í Syðri-Knarrartungu

Bústörfin eru margvísleg í sveitum Vesturlands og þykja bæði hefðbundin og óhefðbundin. Á bænum Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík á Snæfellsnesi er stundaður búskapur sem fellur óneitanlega undir þennan hatt. Þar er kúabúskapur meginstarfið ásamt fjárbúskap í hjáverkum, en einnig nokkuð myndarleg vísna- og kvæðagerð sem húsbóndinn Guðjón Jóhannesson á heiðurinn að. Raunar má deila um hvort…Lesa meira

true

„Aksturinn hefur gengið áfallalaust alla tíð“

„Ég fæddist á loftinu í Grafarholti, sem enn stendur við Merkigerði á Akranesi, beint á móti sjúkrahúsinu. Þetta var þrettánda júlí 1937 svo ég varð áttræður í sumar,“ segir Sigurður Hafsteinn Hallgrímsson, fyrrum bifreiðastjóri, þegar sest er niður með honum í vistlegri hjónaíbúð á dvalarheimilinu Höfða þar sem þau hjónin, hann og Guðrún Jakobsdóttir frá…Lesa meira

true

Nýtt diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun

Háskólinn á Bifröst býður nú í fyrsta skipti upp á diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks og Starfsmenntasjóð verslunarinnar. Um er að ræða starfstengt fagháskólanám fyrir verslunarstjóra og einstaklinga með víðtæka reynslu af verslunarstörfum. Námið er 60 ECTS eininga diplómanám sem byggt er á hæfnigreiningu og…Lesa meira

true

Meðhöndlun matvæla í eldhúsinu um jólin

Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. „Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun sem vill að fólk hafi nokkur mikilvæg atriði í huga. „Sjúkdómsvaldandi bakteríur…Lesa meira

true

Snorri Rafnsson: „Ég elska að veiða, það er mér í blóð borið“

Snorri Rafnsson er einn fárra starfandi veiðimanna á Vesturlandi og hefur hann vakið mikla athygli að undanförnu á samskiptaforritinu Snapchat undir nafninu Vargurinn, en daglega fylgjast um 17 þúsund Íslendingar með honum. Á Snapchat sýnir Snorri frá daglegu lífi veiðimanns sem getur verið býsna spennandi. Hann veiðir að mestu leyti minka en einnig tófur, máva…Lesa meira

true

Átján börn í einum saumaklúbbi

Það var margt um manninn þegar blaðamaður Skessuhorns kom inn í hús á Krókatúninu á Akranesi fyrir stuttu síðan. Börn hlaupa um allt húsið í leik. En þó var ekki mikill hamagangur eða læti eins og við mætti búast þegar átján börn koma saman. Þessi átján börn eru börn sex vinkvenna sem hafa frá átján…Lesa meira

true

Eldgos, missir og von

Nikolína Theodóra Snorradóttir er nýlega orðin sextug. Hún ólst upp í Vestmannaeyjum og var á sextánda aldursári þegar byrjaði að gjósa í Heimaey. Tvítug flutti hún upp á Akranes þar sem hún hefur búið í fjörutíu ár. Hún hefur upplifað mikinn missi í gegnum lífið. Á innan við ári missti hún móður sína og systur…Lesa meira

true

Hittust á jólaklifurmóti

Um liðna helgi hittust ÍA klifrarar á Jólamóti ÍA í aðstöðu klifurfélagsins að Vesturgötu á Akranesi. Um 30 klifrarar mættu prúðbúnir til leiks og glímdu við 13 klifurleiðir sem leiðasmiðir ÍA höfðu sett upp. Mótið heppnaðist afar vel. Leiðasmiðir lögð mikla vinnu í að setja upp skemmtilegar leiðir fyrir klifrara að glíma við og að…Lesa meira

true

Aðventumót eldri borgara í pútti var haldið í Eyjunni

Eldri borgarar í Borgarbyggð hafa æft pútt af kappi innanhúss frá því í byrjun október í skemmtilegri aðstöðu sem nefnd er Eyjan. Það er Golfklúbbur Borgarness og eldi borgarar sem komu sér upp þessari aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brákarey. Þar er æft af kappi tvisvar í viku og hefur mæting verið mjög góð. Að…Lesa meira