Fréttir

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímur varð að lúta í lægra haldi gegn Breiðabliki, 84-68, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á föstudag. Skallagrímur lék án landsliðskonunnar Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur, sem fór úr axlarlið í leik gegn Val á miðvikudag. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Breiðablik náði undirtökunum eftir því sem leið á fyrsta…Lesa meira

true

Fjórir fulltrúar frá Akranesi á NM í sundi

Sundfélag Akranes átti þrjá sundmenn í íslenska landsliðinu sem keppti á Norðurlandameistarmóti sem fram fór um helgina í Laugardalslauginni. Það voru þau Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir. Alls tóku 193 sundmenn frá níu löndum þá á mótinu. Auk þess var Skagakonan Inga Elín Cryer, sem æfir og keppir með Ægi, í landsliðinu.…Lesa meira

true

Kristen með fjórfalda tvennu í sigri Snæfells

Snæfell batt enda á fimm leikja taphrinu á heimavelli með góðum sigri á botnliði Njarðvíkur, 76-62, þegar liðin mætust í Domino‘s deild kvenna í gær. Kristen McCarthy, leikmaður Snæfells, skráði sig í sögubækur íslensks körfubolta í leiknum því hún setti upp fjórfalda tvennu; 31 stig, 15 fráköst, tíu stoðsendingar og tólf stolnir boltar. Aðeins sex…Lesa meira

true

Héldu hátíð brautskráðra doktora

Fimmtíu og þrír doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2016 til 1. desember 2017 tóku við gullmerki skólans á árlegri Hátíð brautskráðra doktora sem fram fór á degi fullveldis Íslendinga. Doktorsnám við HÍ hefur eflst mjög á síðustu árum og hefur framlag doktorsnema til rannsókna og kennslu við skólann átt…Lesa meira

true

Ragnar Leósson gengur til liðs við ÍA

Ragnar Leósson knattspyrnumaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við gamla heimalið sitt; ÍA. Hann kemur nú heim aftur eftir átta ára fjarveru, en hefur á tímabilinu spilað með ÍBV, Fjölni, HK og Leikni R. Ragnar hefur spilað 185 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 27 mörk. „Hann er kærkomin viðbót við okkar öfluga hóp fyrir…Lesa meira

true

Tveir afmælisdrengir tendruðu ljósin á jólatré Skagamanna

Margt var um manninn á Akratorgi síðdegis í gær þegar jólaljósin á Akratorgi voru tendruð við hátíðlega athöfn. Skólakór skipaður yngri nemendum Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur. Lokalag kórsins var nýtt jólalag, Torgið ljómar, sem var sérstaklega samið af Valgerði fyrir þetta tilefni. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði…Lesa meira

true

Ísland í sterkum riðli á HM

Rétt í þessu var dregið var í riðla fyrir Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi næsta sumar. Íslenska karlalandsliðið leikur þar á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Ísland dróst í D riðil, ásamt Argentínu, Króatíu og Nígeríu. Upphafsleikur mótsins verður leikinn 14. júní á Luzhniki-vellinum í Mosvku. Þar mæta gestgjafarnir Rússar liði Sádí Arabíu. Fyrsti…Lesa meira

true

Landsbyggðin komin í Strætóappið

Frá og með deginum í dag gefst farþegum Strætó kostur á að kaupa ferðir á landsbyggðinni í gegnum Strætóappið. Hægt er að sækja appið fyrir iPhone snjallsíma í App Store og fyrir Android snjallsíma í Google Play Store. Hingað til hafa fargjöld í Strætóappinu einungis verið gild innan höfuðborgarsvæðisins. Þessi breyting hefur í för með…Lesa meira

true

Útvarp Akranes komið í loftið

Það er orðinn fastur liður þegar aðventan gengur í garð á Akranesi að Sundfélag Akraness setji Útvarp Akraness í loftið. Það verður að þessu sinni dagana 1. – 3. desember, fyrstu helgina í aðventu. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta útvarpsdagskrá, efni fyrir alla aldurshópa bæði tónlist og viðtalsþætti sem snúa að daglegum málum…Lesa meira

true

Sótt um leyfi til opnunar apóteks á Akranesi

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi Lyfjastofnunar þar sem farið var fram á umsögn vegna útgáfu lyfsöluleyfis til Lyfja og heilsu vegna opnunar nýrrar lyfjaverslunar í verslana- og þjónustukjarnanum að Dalbraut 1. Lyf og heilsa er í eigu Karl Wernessonar og fjölskyldu hans og reka bæði Lyf og heilsu og Apótekarann.…Lesa meira