Fréttir

true

Ísland getur tryggt Rússlandsfarseðil í kvöld

Landslið karla í knattspyrnu spilar í kvöld afar þýðingarmikinn leik við Kósóvó á Laugardalsvelli og hefst hann klukkan 18:45. Þetta er síðasti leikur íslenska landsliðsins í I riðli, en fyrir hann er liðið í efsta sæti. Með sigri í kvöld er farseðillinn á HM næsta sumar tryggður. Í öðru og þriðja sæti í riðlinum eru…Lesa meira

true

Naumt tap ÍA gegn Hamri

ÍA tók á móti Hamri í annari umferð 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi en að lokum fór svo að gestirnir sigruðu naumlega, 72-76. Gestirnir úr Hveragerði byrjuðu betur en eftir það höfðu Skagamenn heldur undirtökin í fyrsta leikhluta. Þeir leiddu með örfáum stigum allt þar til undir lok…Lesa meira

true

Blóði safnað á Hvanneyri og í Borgarnesi á morgun

Bíll Blóðbankans verður á ferðinni á morgun í Borgarfirði. „Við verðum með blóðsöfnun á Hvanneyri í fyrramálið frá kl. 10:00 – 12:30 og í Borgarnesi frá kl. 14:00 – 17:00,“ segir í tilkynningu frá Blóðbankanum. Jafnframt er tekið fram að lagerstaðan í bankanum mætti vera betri. „Við vonum að fólk bregðist vel við og komi…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagríms á Fjölni

Skallagrímur vann öruggan sigur á Fjölnim, 86-63, þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gær. Heimamenn byrjuðu af krafti og höfðu undirtökin snemma leiks. Gestirnir hittu ekki úr skotum sínum og héldu skipulaginu ekki nógu vel. Fyrir vikið komst Skallagrímur í 12-3 um miðjan upphafsfjórðunginn. Gestirnir…Lesa meira

true

Miskunnsami samverjinn við Hraunfossa

Erlendur starfsmaður á vegum landeigenda Hraunsáss II, við Hraunfossa í Borgarfirði, hefur nú staðið vakt alla daga frá því á föstudaginn við að innheimta gjald fyrir bílastæði. Almennt er þessi gjaldtaka talin stangast á við lög og er búist við aðgerðum þar til bærra aðila í þessari viku þar sem gjaldtakan verður stöðvuð. En andstæðingum…Lesa meira

true

Kristen með 53 stig þegar Snæfell sigraði Skallagrím

  Snæfell bar siguorð af Skallagrími, 73-84, í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikurinn fór fram í Borgarnesi í gær. Leikurinn fór fremur hægt af stað. Snæfell setti fyrstu stigin en Skallagrímskonur áttu erfitt með að finna taktinn og hefðu ekki geta keypt sér körfu fyrstu mínúturnar. Snæfell komst í 0-10 áður en Skallagrímsliðið…Lesa meira

true

Ljós friðarsúlunnar tendruð í kvöld

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í ellefta sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Johns Lennons í kvöld, mánudaginn 9. október klukkan 21.00. Ljós hennar verða kveikt til 8. desember, en það er dánardagur tónlistarmannsins. Yoko Ono, ekkja Johns, ávarpar gesti í Viðey í beinni útsendingu frá Höfða fyrir tendrunina. Í tengslum við tendrunina hefur óskatrjám…Lesa meira

true

Í Langaholti er rík áhersla lögð á matvæli úr héraði

Þorkell Símonarson, betur þekktur sem Keli vert, hefur rekið gistihúsið og veitingastaðinn Langaholt í Staðarsveit á Snæfellsnesi í ellefu ár en þar á undan var staðurinn í höndum foreldra hans. „Við erum með fullvinnslueldhús sem þýðir að öll vinnsla matvælanna er unnin á staðnum. Við höfum einnig alla tíð lagt mikla áherslu á að nýta…Lesa meira

true

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar fest í sessi

Í liðinni viku var skrifað undir þjónustusamning milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um 50 milljóna króna árlegan stuðning, í þrjú ár, við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar. Markmið verkefnisins er að auka gæði og hæfni í ferðaþjónustu, einkum framlínustarfsmanna og millistjórnenda. Í því samhengi verður sérstaklega horft til fræðslu sem aðlöguð verður starfsmönnum fyrirtækja í ferðaþjónustu…Lesa meira

true

Vilja fulltrúa í lýðræðisnefnd

Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað sveitarstjórn Borgarbyggðar nýverið að skipa sérstaka upplýsinga- og lýðræðisnefnd sem starfa mun fram að lokum yfirstandandi kjörtímabils. Verkefni nefndarinnar er að styrkja þróun upplýsingamála og efla lýðræðislega umræðu meðal íbúa í sveitarfélaginu. Nefndin á að vera skipuð einum fulltrúa frá hverju framboði sem á fulltrúa í sveitarstjórn,…Lesa meira