Fréttir

true

Klukka gefin til minningar um Stefán Jóhann Sigurðsson

Síðastliðinn sunnudag hefði Stefán Jóhann Sigurðsson í Ólafsvik orðið 80 ára, en hann lést árið 2015. Stefán Jóhann lagði alltaf mikið af mörkum til byggðarlagsins ekki síst í félags-, íþrótta- og æskulýðsmálum. Má þar nefna sveitarstjórnarmál, en einnig var hann í forystu hjá Ungmennafélaginu Víkingi til margra ára. Þá sá hann í mörg ár um…Lesa meira

true

Stelpurnar okkar mæta Færeyingum í kvöld

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM. Liðin mætast á Laugardalsvelli klukkan 18:15 í kvöld, en frítt er inn fyrir áhorfendur. Litlar breytingar eru á liðinu frá því á EM í Hollandi. Samkvæmt Uefa.com mun Ísland spila 4-3-3 í leiknum í dag en Elín Metta Jensen er fremst.Lesa meira

true

Rjúfa þing á kjördag sem verður 28. október

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti í dag að starfsstjórn fráfarandi ríkisstjórnar muni sitja fram að kosningum til Alþingis. Þær hafa verið ákveðnar laugardaginn 28. október, 354 dögum eftir þær síðustu. Forseti varð við beiðni Bjarna Benediktssonar um að þing verði rofið sama dag. Fram kom á blaðamannafundi sem forsetinn hélt í dag að ekki…Lesa meira

true

Segja úrlausn fyrir sauðfjárbændur ekki þola bið

„Fulltrúar Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) og Bændasamtaka Íslands (BÍ) hafa síðustu vikur og mánuði leitað lausna ásamt stjórnvöldum á aðsteðjandi rekstrarvanda sauðfjárbænda. Ekki þarf að fjölyrða um áhrif allt að 35% lækkunar á afurðaverði sem sláturleyfishafar kynntu bændum í ágústmánuði. Þau eru alvarleg og fjöldi bænda sér fram á verulega erfiðleika í sínum rekstri ef fram…Lesa meira

true

Dramatískt jafntefli á Akranesvelli

ÍA og Stjarnan mættust í 20. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Akranesi og lokatölur urðu 2-2, svekkjandi úrslit fyrir bæði lið. Þar með missti Stjarnan endanlega af Íslandsmeistaratitlinum og von Skagamanna á að halda sæti sínu í deildinni er orðin afar veik. Skagamenn voru ekki lengi að ná forystunni…Lesa meira

true

Dregið úr umferðarhraða á móts við skólann

Áður en Ennisbrautin í Ólafsvík var malbikuð fyrr í sumar var umferðareyja á móts við Ennisbraut 14 fjarlægð. Við það jókst umferðarhraðinn töluvert um götuna. Í síðustu viku unnu starfsmenn Vegagerðarinnar svo við að raða saman umferðareyjunni að nýju og er nú vonast til að dragi úr hraðanum. Fram til þessa hefur umferðin í og…Lesa meira

true

Káramenn hófu bikar á loft

Lokaumferð 3. deildar karla í knattspyrnu var leikin síðastliðinn laugardag. Lið Kára, sem þegar hafði tryggt sér sigur í deildinni, mætti Dalvík/Reyni í Akraneshöllinni. Káramenn léku með sorgarbönd í leiknum til minningar um Arnar Dór Hlynsson, dyggan stuðningsmann og góðan dreng. Arnar Dór lést síðastliðinn fimmtudag eftir erfið veikindi aðeins 38 ára að aldri. Yfirburðir…Lesa meira

true

Undirbúa stefnumótunarfund á Bifröst

Stjórn Háskólans á Bifröst hefur ákveðið að halda sérstakan stefnumótunarfund á Bifröst laugardaginn 21. október nk. Til fundarins er boðið fulltrúaráði skólans, starfsfólki, nemendum og fulltrúum aðstandenda skólans, þ.e. Borgarbyggðar, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra samvinnufélaga og Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst. Viðfangsefni fundarins verður að fjalla um mikilvægar spurningar um stöðu og framtíð skólans og vísa…Lesa meira

true

Eva Pandóra sækist eftir forystusæti

„Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir að leiða lista Pírata í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum,“ segir Skagfirðingurinn Eva Pandóra Baldursdóttir, alþingismaður. Hún er 27 ára viðskiptafræðingur og búsett á Sauðárkróki. „Í aðdraganda síðustu kosninga hlaut ég brautargengi til að leiða lista Pírata og var kjörin til setu á Alþingi í kosningunum sem fram…Lesa meira

true

Ævar Þór hlaut fjölmiðlaverðlaun fyrir umhverfismál

Ævar Þór Benediktsson vísindamaður frá Stað í Borgarhreppi hlaut í tengslum við dag umhverfisins fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þá fékk Sigþrúður Jónsdóttir Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við sama tilefni. Hlýtur hún þau fyrir áralanga baráttu sína fyrir friðun Þjórsárvera. Ævar Þór hlaut verðlaunin fyrir að hafa fjallað á fjölbreyttan, fræðandi og skemmtilegan hátt um umhverfið,…Lesa meira