Fréttir

true

Skagamenn halda í vonina

ÍA og Fjölnir skildu jöfn þegar liðin mættust í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram í Grafarvogi og hvort lið skoraði tvö mörk. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill. Heimamenn voru meira með boltann en náðu ekki að skapa sér almennileg færi. Á meðan lágu Skagamenn til baka og freistuðu…Lesa meira

true

Samkaupsverslun í Búðardal verður breytt í Kjörbúð

Framundan eru talsverðar breytingar á verslun Samkaupa í Búðardal og verður versluninni á næstunni breytt í Kjörbúð og opnuð sem slík síðar í haust. Í frétt Skessuhorns í byrjun nóvember á síðasta ári sagði frá að öllum Samkaup Úrval og Samkaup strax verslunum á landinu yrði breytt yfir í önnur vörumerki.  Samkaup rak fyrir breytingarnar…Lesa meira

true

Víkingur Ó. í fallsæti eftir tap gegn Stjörnunni

Víkingur Ó. datt niður í fallsæti í Pepsi deild karla í knattspyrnu eftir 3-0 tap gegn Stjörnunni á útivelli í gær. Heimamenn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og komust yfir eftir hálftíma leik með marki frá Hilmari Árna Halldórssyni. Eyjólfur Héðinsson renndi boltanum á Hilmar sem lét vaða fyrir utan teig. Skot hans var…Lesa meira

true

Miðstigsleikar voru haldnir í Borgarnesi

Nýrverið voru haldnir Miðstigsleikar á Skallagrímsvellinum í Borgarnesi. Miðstigsleikarnir eru fyrsta samstarfsverkefni skólaársins hjá sex grunnskólum á Vesturlandi. Þessir skólar eru: Grunnskólinn á Reykhólum, Auðarskóli í Búðardal, Grunnskóli Borgarfjarðar, Laugargerðisskóli, Grunnskólinn í Borgarnesi og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit. Keppt var í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Þær greinar frjálsra íþrótta sem keppt var í voru: 60 metra…Lesa meira

true

Ríkisstjórnarsamstarfi slitið

Stjórn Bjartrar framtíðar ákvað seint í gærkvöldi að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu við Viðreisn og Sjálfstæðisflokkinn. Ástæða stjórnarslitanna segir Björt framtíð vera alvarlegan trúnaðarbrest innan ríkisstjórnarinnar. Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigríður Andersen dómsmálaráðherra, munu hafa leynt samráðherra sína og samflokka í ríkisstjórn því að faðir forsætisráðherra, Benedikt Sveinsson, hafi skrifað meðmælabréf vegna umsóknar dæmds…Lesa meira

true

Íbúar í Brákarhlíð styðja Rauða krossinn

Í síðustu viku afhentu íbúar og starfsfólk á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi gjöf til Rauða krossins. Voru það flíkur sem prjónaðar hafa verið í iðjunni í Brákarhlíð á síðustu mánuðum. Fallegir vettlingar og sokkar, húfur og treflar og teppi sem fylltu tvo stóra sekki. Fulltrúar úr stjórn Borgarfjarðardeildar Rauða krossins komu og veittu…Lesa meira

true

Fjölbreytt og erfitt en rosalega skemmtilegt

Iðunn Silja Svansdóttir og Halldór Sigurkarlsson eru búsett í Hrossholti á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þau hafa starfað við tamningar og þjálfun hrossa í Hestamiðstöðinni Söðulsholti í Eyja- og Miklaholtshreppi. Hafa þau haft umsjón með hestamiðstöðinni allt frá því starfsemi hestamiðstöðvarinnar hófst þar árið 2006. „Dóri vann við að byggja hérna og við tókum síðan við þessu…Lesa meira

true

Hafa þungar áhyggur af almenningssamgöngum

Almenningssamgöngur voru til umræðu á síðasta fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem fram 23. ágúst síðastliðinn. Páll Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, fór yfir stöðuna á rekstri almenninssagangna á fyrstu sjö mánuðum ársins. Reksturinn gekk mun verr í sumar en undanfarin sumur og ljóst þykir að töluverð fækkun hefur orðið á farþegum. Beðið er eftir farþegatölum…Lesa meira

true

Síðasta kvöldmáltíðin í Samkaup í Búðardal

„Eins og margir hafa kannski verið búnir að frétta, þá á að fara að breyta búðinni hérna í Kjörbúð. Eitt af því sem þær breytingar hafa í för með sér er að grillið og eldhúsið lokar. Á morgun bjóðum við í síðasta skipti upp á föstudagskjúklinginn,“ skrifar Ingvar Kristján Bæringsson, verslunarstjóri Samkaup Strax í Búðardal,…Lesa meira