Fréttir

true

Team Rynkeby afhenti um 9,5 milljónir króna

Á samkomu í Smáralind á laugardaginn afhenti Team Rynkeby Ísland hjólreiðaliðið Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna afrakstur söfnunar sinnar á síðasta ári. Nam upphæðin tæplega 9,5 milljónum króna. Team Rynkeby verkefnið hefur vaxið og dafnað og í júlí síðastliðnum hjóluðu um 1.400 manns frá öllum Norðurlöndunum til Parísar. Meðal þeirra voru um fjórir tugir Íslendinga og var…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran í hús

„Það er ekki eftir sem af er,“ skrifar Sveinbjörn Eyjólfsson kartöfluræktandi í Þingnesi í Borgarfirði á Facebook sína í gær þegar fjölskyldan hafði lokið við að taka upp dágóða uppskeru. Meðfylgjandi mynd sýnir Ingu Vildísi eiginkonu hans, tvær af dætrum þeirra og eina dótturdóttir. Það er ástæða til að gleðjast yfir svona flottum kartöflum því…Lesa meira

true

Forsetinn í fjárdrætti

Í dag var réttað í Þverárrétt í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Réttarhald gekk vel enda góð aðstoð sem bændum bauðst nú sem fyrr. Meðal annarra var forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson á ferð og aðstoðaði hann réttarstjórann, Halldór Jónsson á Þverá, við að draga rígvæna dilka í réttinni. Meðfylgjandi myndir tók Iðunn Silja Svansdóttir…Lesa meira

true

Jafntefli var hreint ekki óskaniðurstaða Skagamanna

Skagamenn og Stjarnan skildu jöfn í baráttuleik sem spilaður var á Akranesi í dag. Úrslitin voru 2:2 sem þýðir að nánast er öruggt að ÍA er fallið og mun leika í fyrstu deild að ári. Í samtali við fotbolti.net sagði Garðar Gunnlaugsson fyrirliði að veðrið hafi ekki boðið upp á fallegan fótbolta; „en við sýndum…Lesa meira

true

Skagaleikur í dag – Víkingsleik frestað

Meistaraflokkur karla hjá ÍA tekur á móti Stjörnunni í tuttugustu umferð Pepsideildarinnar á Akranesvelli í dag klukkan 16. Bæði lið hafa að miklu að keppa, en Skagamenn eru einfaldlega að berjast fyrir veru sinni í deildinni. Stjarnan eygir hins vegar von um að landa Íslandsmeistaratitli. Skagamenn eru sem stendur sjö stigum undir Fjölni sem situr…Lesa meira

true

Boðað til kosninga í haust

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti á blaðamannafundi, sem lauk rétt í þessu í Valhöll, að boðað yrði kosninga til Alþingis í haust. „Mín sannfæring stendur til þess að við eigum að ganga til fundar við kjósendur í þessu landi,“ sagði Bjarni. Sagðist hann hafa rætt við leiðtoga stærstu flokka Alþingis í kjölfar þess að Björt framtíð…Lesa meira

true

Óheimilt að fullyrða að kjúklingar séu lausir við salmonellu

„Samkvæmt áliti Matvælastofnunar er óheimilt að nota fullyrðingar þess efnis að frosnir eða ferskir kjúklingar á íslenskum markaði séu lausir við salmonellu.  Þetta á við hvort sem um er að ræða íslenska kjúklinga eða innflutta. Borið hefur á slíkum merkingum á frosnum dönskum kjúklingum í verslunum hér á landi.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Heiðarleiki er talinn langstærsti mannkosturinn

Á vef Skessuhorns í síðustu viku var vikuleg könnun. Voru lesendur spurðir hverjir væru stærstu mannkostirnir að þeirra mati. Tíu svarmöguleikar voru í boði. Niðurstaðan var hins vegar afar ótvíræð. “Heiðarleiki” var sá mannkostur sem flestir telja mikilvægastan, en 60% völdu hann í fyrsta sæti. “Virðing” hlaut atkvæði 9%, “réttlætiskennd” 7%, þá “jákvæðni” og “auðmýkt”…Lesa meira

true

Selja Búlandstindi kælikerfi fyrir lax

Skaginn 3X og Búlandstindur á Djúpavogi skrifuðu á Íslensku sjávarútvegssýningunni undir samning um sölu á undirkælikerfi fyrir laxvinnslu. Þetta er fimmta ofurkælikerfið sem Skaginn 3X selur á þessu ári en fyrirtækið skrifaði einnig nýverið undir samning við Íslandsbleikju í Grindavík. Kerfið fyrir Búlandstind mun afkasta allt að 13 tonnum á klukkustund og gerir fyrirtækinu kleift…Lesa meira

true

Hönnun ljósleiðarakerfis er lokið í Borgarbyggð

Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á síðasta ári ákvörðun um að hefja undirbúningsvinnu við ljósleiðaravæðingu í sveitarfélaginu. Sú vinna er nú komin vel á veg, en hófst eins og kunnugt er með því að Guðmundur Daníelsson ráðgjafi var ráðinn til að annast ákveðna undirbúningsvinnu, hanna ljósleiðarakerfi og ákveðna undirbúningsvinnu sem nauðsynleg er þegar hafist er handa við…Lesa meira