Fréttir

true

Opus lögmenn hafa opnað útibú í Borgarnesi

Fyrr í ágústmánuði var útibú lögmannsstofunnar Opus lögmanna opnað að Skallagrímsgötu 3 í Borgarnesi. Einn eigenda stofunnar, Flosi H. Sigurðsson hdl., er búsettur í Borgarnesi og veitir þaðan alla almenna lögfræðiþjónustu. „Ég flutti í Borgarnes í júlí í fyrra og hef að hluta til unnið að heiman síðan þá og tekið á móti viðskiptavinum á…Lesa meira

true

Kjötveislan mikla er hafin – Nettó býður kjöt undir kostnaðarverði

Meðfylgjandi mynd er skjáskot af auglýsingu á heimasíðu verslanakeðjunnar Nettó. Verslunin býður nú lambalæri á 794 krónur kílóið, en það jafngildir 47% verðlækkun. Fastlega er búist við að svipuð tilboð fylgi í kjölfarið hjá fleiri verslunum. Þess má þó geta að kílóið af lambalæri var í gær á 1.850 krónur í Costco í Garðabæ svo…Lesa meira

true

Gagn og gaman endurútgefið eftir áratuga hlé

Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur endurútgefið hina áhrifaríku kennslubók; Gagn og gaman. Með því að stauta sig í gegnum bókina lærðu þúsundir Íslendinga lestur og á hún því sterk tök í huga margra sem komnir eru til vits og ára. Bókin var nær einráð við lestrarkennslu yngstu barna í hálfa öld. Hún byggðist á hljóðaðferð…Lesa meira

true

Framandi fiskar veiðast í borgfirskum ám

Hnúðlaxinn á meðfylgjandi mynd veiddist í net ofarlega í Hvítá í Borgarfirði fyrr í vikunni. Verður hann sendur til rannsóknar og sýnatöku hjá Hafrannsóknastofnun. Að sögn Kolbrúnar Sveinsdóttur bónda á Norður-Reykjum eru hængar hnúðlaxins taldir óætur. Kolbrún segist ekki minnast þess að hnúðlax hafi veiðst áður í Hvítá, en fyrir um 50 árum síðan hafi…Lesa meira

true

Sameining deilda Háskólans á Bifröst

Félagsvísindadeild og lagadeild Háskólans á Bifröst voru sameinaðar í eina deild þann 1. ágúst síðastliðinn, undir heitinu félagsvísinda- og lagadeild. „Markmiðið með sameiningunni er fyrst og fremst að styrkja deildirnar faglega og auka gæði í innra starfi skólans,“ segir í tilkynningu. Fyrsti forseti félagsvísinda- og lagadeildar er Dr. Sigrún Lilja Einarsdóttir dósent, sem áður gegndi…Lesa meira

true

Bifreiðastöð ÞÞÞ stendur á níræðu

Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi fagnaði 90 ára starfsamæli miðvikudaginn 23. ágúst síðastliðinn. Á afmælisdaginn færðu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Ólafur Adolfsson, formaður bæjarráðs, forsvarsmönnum ÞÞÞ málverk eftir Bjarna Þór og blómvönd úr Módel í tilefni afmælisins. Fyrirtækið var stofnað 23. ágúst árið 1927 af Þórði Þ. Þórðarsyni og Sigríði Guðmundsdóttur á Hvítanesi við Kirkjubraut…Lesa meira

true

Segir ríkisstjórnina þurfa að hætta öllum sandkastalaleik

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Félag sauðfjárbænda í Skagafirði hélt í gær opinn umræðufund á Blönduósi um stöðu og málefni sauðfjárbænda. Fjölmenni var á fundinum og einkum rætt um áhrif verðfalls á sauðfjárafurðum í haust. Þar mættu auk bænda forsvarsmenn bænda, afurðastöðva auk stjórnmálamanna. Þrír þingmenn NV kjördæmis mættu; Teitur Björn Einarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir…Lesa meira

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur á fimmtugu

Fimmtudaginn 7. september næstkomandi verða 50 ár liðin frá stofnun Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Skólinn var stofnaður þennan sama dag árið 1967 og voru það félagar í Tónlistarfélagi Borgarfjarðar sem höfðu forgöngu að stofnun hans. Til stendur að halda upp á daginn með opnu húsi með pompi og prakt á sjálfan afmælisdaginn, fimmtudaginn í næstu viku. „Hugmyndin…Lesa meira

true

Ræða sameingingarmál á íbúafundum

Nefnd um sameiningu sveitarfélaganna Helgafellssveitar, Grundarfjarðar og Stykkishólmsbæjar vinnur að úttekt um kosti og kalla sameiningar sveitarfélaganna þriggja. Boðað hefur verið til íbúafundar um sameininguna í öllum þremur sveitarfélögunum á næstunni; í Stykkishólmi miðvikudaginn 6. september í Hótel Stykkishólmi frá kl. 17:00 til 19:15, sama dag í félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit frá kl. 20:00 til…Lesa meira

true

Nýliðaþjálfun hefst í næstu viku hjá Björgunarfélagi Akraness

Framundan er inntaka nýliða í Björgunarfélag Akraness. Á hverju hausti geta áhugasamir byrjað þjálfun til inngöngu í félagið. Um upplagt tækifæri er að ræða fyrir alla sem taka vilja taka þátt í gefandi starfi við leit og björgun á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þriðjudaginn 5. september klukkan 20 verður haldinn kynningarfundur fyrir nýliða í húsi Björgunarfélagsins…Lesa meira