Fréttir

true

Víkingskonur lágu fyrir ÍR

Lið Víkings Ó. er svo gott sem fallið úr 1. deild kvenna í knattspyrnu eftir 4-1 tap gegn ÍR í Reykjavík síðastliðið föstudagskvöld. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir kom ÍR yfir á 42. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Raunar virtist lengi vel sem það yrðu lokatölur leiksins, eða allt þar til á lokamínútunum að fjör…Lesa meira

true

Víkingur Ó. steinlá fyrir norðan

Liðsmenn Víkings Ó. fengu skell þegar þeir mættu KA á Akureyri í gær. Heimamenn voru miklu sterkari og unnu að lokum stórsigur, 5-0. Ólsarar urðu fyrir áfalli í upphafi því fyrirliðinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson meiddist eftir aðeins þrjár mínútur og varð að fara af velli. Heimamenn voru mjög ákveðnir og komust yfir á 10. mínútu.…Lesa meira

true

ÍA tapaði í Kópavoginum

ÍA og Breiðablik mættust í 17. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli og það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 2-0. Var þetta fyrsti leikur liðsins undir stjórn nýs þjálfara, Jóns Þórs Haukssonar. Leikurinn byrjaði fjörlega og Blikar hefðu getað náð forystunni eftir aðeins þriggja mínútna…Lesa meira

true

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands í flestum sveitarfélögum

Alla miðvikudaga í september mun Ferðafélag Íslands standa fyrir lýðheilsugöngum um allt land. Göngurnar eru hluti af afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga og verða vítt og breitt um landið, sú fyrsta 6. september. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka  u.þ.b. 60-90 mín.…Lesa meira

true

Klippir í þágu krabbameinssjúkra barna á afmælisdaginn

Rakarastofa Gísla við Stekkjarholti 8 á Akranesi fagnar tíu ára afmæli næstkomandi föstudag, 1. september. Að sögn Gísla Guðmundssonar hárskera hefur hann ákveðið að halda upp á daginn með óvenjulegum hætti. „Það verða engar kökur eða afmælistilstand í tilefni dagsins. Ég hef hins vegar ákveðið að hafa opið og mun öll innkoma á afmælisdaginn renna…Lesa meira

true

Vinafélag Barmahlíðar á Reykhólum er tíu ára

Vinafélag dvalar- og hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum verður tíu ára 1. september næstkomandi, en félagið hefur starfað samfellt frá því þann dag árið 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórnarmenn í félaginu birta á Reykhólavefnum. Velunnarar heimilisins stofnuðu vinafélagið á sínum tíma og 15 félagar undirrituðu stofnfundargerðina. Tilgangur félagsins er að efla og auka…Lesa meira

true

Slitnir Strengir handhafi menningarverðlauna Kirkjubólshjóna

Steinunn Sigurðardóttir hlaut ljóðaverðlaunin   Verðlaunaveiting úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda og konu hans Ingibjargar Sigurðardóttur fór fram á laugardaginn. Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar falla í skaut Steinunnar Sigurðardóttur skáldkonu en Borgfirsku menningarverðlaunin fær fiðlusveitin Slitnir strengir á Akranesi. Fyrst voru veittar viðurkenningar úr sjóðnum árið 1991. Milli verðlaunaveitinga hafa liðið 2-4 ár og…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að nýrri leikskóladeild í Skátahúsinu á Akranesi

Bæjarráð Akraneskaupstaður fól á fundi sínum í gær sviðsstjóra skóla- og frístundarsviðs í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og stjórnsýslu- og fjármálasviðs að hefja undirbúning að gerð leigusamnings við Skátafélags Akraness á notkun húsnæðis félagsins að Háholti 24 fyrir leikskóladeild yngri barna. „Málið er nú á vinnslustigi og næstu skref eru að ganga til…Lesa meira

true

Síðasti áfangi viðgerða á Borgarfjarðarbrú

Nú eru hafnar að nýju framkvæmdir hjá brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar við endurbætur á brúargólfi Borgarfjarðarbrúar, næst Borgarnesi. Þetta er jafnframt lokaáfangi verksins, sem unnið hefur verið í áföngum allt frá árinu 2012. Við verkið notar flokkurinn sérstakan háþrýstifræsara sem brýtur brúargólfið niður að járngrind og síðan er steypt upp á nýjan leik. Umferð um brúna er…Lesa meira

true

Gríðarlega mikilvæg helgi fyrir Vesturlandsliðin

Knattspyrnusumarið hefur fram til þess verið nokkuð erfitt fyrir Vesturland. Skagamenn sitja á botni Pepsideildar karla með tíu stig eða sex stigum á eftir næsta liði, Víkingur Ólafsvík er þremur stigum frá fallsæti í sömu deild. Þá er útlitið fremur dökkt hjá kvennaliði Víkings Ólafsvíkur sem er í næstneðsta sæti fyrstu deildar kvenna, sex stigum…Lesa meira