Fréttir

true

Ætla að herða reglur um farþegaflutninga

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú tekið til endurskoðunar reglur sem auka eiga öryggi farþega í hópflutningum í dreifbýli. Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi frá og með 1. janúar 2019 en í drögunum er gert ráð fyrir að óheimilt verði að aka með standandi farþega þar sem leyfður hámarkshraði er yfir 80 km/klst. Ef af…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í hrútaþukli á Ströndum

Í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum verður sunnudaginn 20. ágúst kl. 14 haldið Íslandsmeistaramót í hrútaþukli. Þetta er í fimmtánda skipti sem mótið fer fram. Þessi íþróttagrein er uppfinning Strandamanna. Á síðasta ári mættu um 500 manns til að horfa á keppnina og yfir 70 tóku þátt. „Kaffihlaðborð og kjötsúpa verður í boði á Sauðfjársetrinu,…Lesa meira

true

Vilja hefja viðræður um áframhald ferjusiglinga

Bæjarráð Akraneskaupstaðar ákvað á fundi sínum í síðustu viku að fela Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra Akraness að hefja viðræður við Sæferðir ehf. og Reykjavíkurborg um framhald ferjusiglinga yfir Faxaflóa árið 2018. Í samtali við ruv.is segir Sævar að mikill áhugi sé meðal ferðaþjónustuaðila á Akranesi að fá niðurstöðu sem fyrst um framhald ferjusiglinganna. Enn fremur…Lesa meira

true

Bjarki sigraði á 20 undir pari í Þýskalandi

Bjarki Pétursson, kylfingur úr Golfklúbbi Borgarness, gerði sér lítið fyrir og bar sigur úr býtum á sterku áhugamannamóti í Þýskalandi, Berlin Open, sem fram fór í síðustu viku. Leikið var á Berlin Wannsee vellinum sem er einmitt heimavöllur Bjarka. Bjarki lék hringina fjóra í mótinu á hvorki fleiri né færri en 20 höggum undir pari…Lesa meira

true

Rútuferðir á leik ÍA og Grindavíkur

Í kvöld mætast ÍA og Grindavík í Pepsi deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram í Grindavík og hefst kl. 18:00. ÍA situr sem stendur í botnsæti deildarinnar með 10 stig og hver leikur dýrmætur það sem eftir lifir mótsins. Stuðningur áhorfenda er mikilvægur og hefur fyrirtækið Elkem Ísland ákveðið að bjóða stuðningsmönnum ÍA upp á…Lesa meira

true

Leki kom að Gulltoppi í Akraneshöfn

Að beiðni Faxaflóahafna og lögreglu var Björgunarfélag Akraness kallað að Akraneshöfn í morgun til að dæla vatni úr farþegabátnum Gulltoppi sem bundinn er við Sementsbryggjuna. Báturinn var tekinn að hallast mikið. Björgunarfélagsmenn kölluðu slökkvilið sér til aðstoðar við verkið því mikill leki var að skipinu. Aðgerðir gengu vel, en eftir er að kanna með ástæður…Lesa meira

true

Skagakonur unnu stórsigur á Hömrunum

ÍA vann 5-0 stórsigur á Hömrunum þegar liðin mættust 14. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri á Akranesi sl. laugardag. Þrátt fyrir að úrslit leiksins hafi verið afgerandi voru Skagakonur nokkuð lengi að brjóta ísinn. Þær virtust taugatrekktar framan af fyrri hálfleik og fyrsta markið kom ekki fyrr en á…Lesa meira

true

Alvarlegur byggðavandi blasir við

Landssamtök sauðfjárbænda hafa sent frá sér tilkynningu vegna þeirra slæmu stöðu sem upp er komin í atvinnugrein þeirra vegna verðfalls á lambakjöti. „Íslenskir sauðfjárbændur horfa fram á þriðjungs lækkun á afurðaverði í haust, í kjölfar nærri 10% lækkunar á síðasta ári. Þessar lækkanir munu koma harkalega niður á sveitum landsins og bitna sérstaklega á yngri…Lesa meira

true

Var nálægt því að stranda

Um klukkan 17 á laugardaginn barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar neyðarboð frá báti sem staddur var á Breiðafirði. Um borð voru tveir. Sögðu þeir að bátinn væri við að reka upp í Framri – Langey í innanverðum Breiðafirði. Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir SL við Breiðafjörð voru kallaðar út á fyrsta forgangi. Einnig voru nærstaddir bátar beðnir um…Lesa meira

true

Björn Thoroddsen spilaði við Bjössa Lú vegginn

Óvænt en skemmtileg uppákoma var í dag við vegginn sem Björn Lúðvíksson hagleiksmaður á Akranesi skreytti svo eftirminnilega fyrr í sumar við Kirkjubraut á Akranesi. Þema myndanna á veggnum er breski tónlistarmaðurinn David Bowie, sem lést fyrir hálfu öðru ári síðan. Ekki síðri gítarleikari en Björn Thoroddsen spilaði við vegginn. Meðfylgjandi myndband lýsir stemningunni.Lesa meira