Fréttir

true

Hraundís valin handverkskona ársins

Handverkshátíðin 2017 fór fram á Hrafnagili í Eyjafirði frá fimmtudegi og lauk í dag. Þar mættu 150 sýnendur sem settu upp fjölbreytta og skemmtilega sýningu og veðrið lék við mannskapinn. Árlega er valinn handverksmaður ársins á sýningunni. Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Hraundísar Guðmundsdóttur á Rauðsgili í Borgarfirði. Hún framleiðir og selur ilmkjarnaolíur.…Lesa meira

true

Gott gengi Vestlendinga á HM íslenska hestsins

Ísland vann til fernra gullverðlauna í íþróttakeppninni á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem lauk í Hollandi í dag. Þá voru tveir af íslensku kynbótahestunum efstir í sínum aldursflokki. Ísland fékk að auki liðsbikarinn sem er veittur stigahæsta keppnisliðinu. Gengi vestlenskra hestamanna í landsliði Íslands var hreint út sagt frábært. Heimsmeistari í tölti varð Jakob Svavar Sigurðsson…Lesa meira

true

Langar biðraðir mynduðust í Borgarnesi

Gríðarlegar umferðartafir urðu seinni hluta dags og fram á kvöld á föstudaginn í Borgarnesi. Frá klukkan átta um morguninn og fram á kvöld var unnið við malbikun þess hluta þjóðvegarins sem liggur í gegnum bæinn. Mikil umferð var þennan dag og hefðu framkvæmdaaðilar og Vegagerð mátt sjá það fyrir að dagurinn var ekki sá hentugasti…Lesa meira

true

Jakob Svavar og Gloría langefst eftir forkeppni

Forkeppni í tölti fór í gær fram á HM íslenska hestsins í Hollandi. Enn halda vestlenskir knapar áfram við að gera góða hluti. Efstur eftir forkeppnin er Jakob Svavar Sigurðsson og glæsihryssan Gloría frá Skúfslæk. Hlutu þau í einkunn 8,57. Annar með 8,07 er Guðmundur Friðrik Björgvinsson á Straumi frá Feti. Þriðju eru svo Jóhann…Lesa meira

true

Alvarlegur skortur á dagvistunarúrræðum á Akranesi

Í þessari viku kom í ljós að starfsemi tveggja dagmæðra á Akranesi verður ekki eins og til stóð. Þar með missa níu börn dagforeldrapláss. Önnur dagmæðranna ákvað með litlum fyrirvara að hverfa til annarra starfa en hins vegar fékkst ekki leyfi til að starfrækja dagvistun tveggja dagmæðra í sama fjölbýlishúsinu og því fækkaði um aðra…Lesa meira

true

Hallgrímskirkja í Saurbæ sextíu ára

Næstkomandi sunnudag verður þess minnst með hátíðarguðsþjónustu klukkan 14 í Hallgrímskirkju í Saurbæ að 60 ár eru liðin frá vígslu kirkjunnar. Þar mun sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédika og sr. Kristinn Jens Sigurþórsson sóknarpresturinn þjóna fyrir altari. Kór Saurbæjarprestakalls, undir stjórn Zsuzsönnu Budai, syngur suma þekktustu sálma Hallgríms Péturssonar og María Jónsdóttir sópran syngur…Lesa meira

true

Aðalfundur í hollvinafélagi starra

Meðfylgjandi mynd tók Fjóla Borg Svavarsdóttir á Hrappsstöðum í Dölum í morgun. Sýnir hún hóp 300 starra sem búnir voru  að raða sér á rafmagnslínur við íbúðarhúsið á bænum. Farfuglar eru víða farnir að hópa sig saman. Fjóla sagði þessa sýn hafa verið magnaði og greip hún því símann og smellti af þessari skemmtilegu mynd.…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn frá ÍA til Halmstad

Tryggvi Hrafn Haraldsson sóknarmaður hjá knattspyrnufélagi ÍA hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad og skrifaði Tryggvi nýverið undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Í tilkynningu sem ÍA sendi frá sér í kjölfar félagaskiptanna segir Magnús Guðmundsson formaður KFÍA að hlutirnir hafi gengið hratt fyrir sig í samningaviðræðum. „Halmstad hafði samband við félagið eftir…Lesa meira

true

Umferðartafir vegna malbikunar í Borgarnesi í dag

Í dag er stefnt að því malbika á hringveginum í gegnum Borgarnes, allt frá Sandvík að Snæfellsnesvegi. Um er að ræða 1200 metra vegarkafla, báðar akreinar, en unnið er á einni akrein í einu. Lokað er með umferðarstýringu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmdum stendur frá kl. 8:00 til kl. 21:00…Lesa meira

true

Svipað atvinnuleysi milli ára

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 205.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í júní 2017, sem jafngildir 85,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 201.100 starfandi og 4.700 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 83,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,3%. Samanburður mælinga fyrir júní 2016 og 2017 sýnir…Lesa meira