
Vegfarendur eru varaðir við töluverðum tjörublæðingum í Norðurárdal í Borgarfirði en unnið er að úrbótum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni.Lesa meira

Vegfarendur eru varaðir við töluverðum tjörublæðingum í Norðurárdal í Borgarfirði en unnið er að úrbótum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni.Lesa meira

Byggðarhátíðin Reykhóladagar hefst á morgun, fimmtudaginn 27. júlí og stendur fram á sunnudag, 30. júlí. Bryndís Soffía Jónsdóttir, starfandi tómstundafulltrúi Reykhólahrepps, segir undirbúning hátíðarinnar hafa gengið vel fyrir sig. „Það hefur gengið mjög smurt að undirbúa Reykhóladagana og raða saman dagskránni. Það er mikill samhugur í fólki og allir sem að þessu koma tilbúnir að…Lesa meira

Nýverið var séra Hjálmar Jónsson, fyrrum sóknarprestur í Dómkirkjunni og alþingismaður, ráðinn sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli til fjögurra mánaða. Hjálmar er einn reynslumesti prestur landsins en hefur að mestu leyti starfað sem prestur í fjörutíu ár ef frá eru talin árin hans á Alþingi. Ástæðan fyrir skipun Hjálmars til bráðabirgða í sóknina, er sú að séra…Lesa meira

Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar samþykkt á fundi sínum í gær að frá og með hausti 2017 muni sveitarfélagið leggja öllum grunnskólanemendum á Akranesi til ritföng og stílabækur, foreldrum að kostnaðarlausu. Ráðið áætlar að árlegur kostnaður yrði fjórar milljónir, eða 4000 krónur á hvern nemanda. Í fundargerð skóla- og frístundaráðs segir: „Með ákvörðun sinni vill skóla-…Lesa meira

Tilboð hafa verið opnuð í endurbyggingu og klæðningu á 3,8 km vegarkafla neðst í Lundarreykjadal í Borgarfirði, neðsta hluta Uxahryggjavegar sem liggur frá Borgarfjarðarbraut og að Gröf. Borgarverk átti lægsta boð í verkið og hljóðaði það upp á 113,6 milljónir króna sem er um 96% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem hljóðar upp á 118,5 milljónir króna.…Lesa meira

Matvælastofnun vill benda hundaeigendum á að skilja hunda aldrei eftir í bílum þegar heitt er í veðri. Samkvæmt 21. grein reglugerðar um aðbúnað gæludýra má ekki skilja hund eftir í eða á flutningstæki án eftirlits ef hitastig getur farið yfir +25°C eða undir -5°C, og aldrei má skilja hund einan eftir í flutningstæki ef hann…Lesa meira

Einn leikur fór fram í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar Víkingur Ó. mætti toppliði Vals á Ólafsvíkurvelli. Leikurinn fór fjörlega af stað og bæði lið fengu ágæt tækifæri til að skora á upphafsmínútunum sem ekki tókst að nýta. Valsmenn voru nálægt því að komast yfir á 15. mínútu þegar Andri Adolphsson átti…Lesa meira

Reykholtshátíð verður haldin í tuttugasta og annað sinn um helgina, dagana 28. til 30 júlí. „Dagskráin er sérlega glæsileg, fernir tónleikar sem bjóða upp á fjölbreytta flóru tónverka, flutt af mörgum af þekktustu tónlistarmönnum okkar og sérlegum gestum, finnska strengjakvartettinum Meta4. Efnisskráin spannar aldir – allt frá Bach (1685-1750) til hins finnska Juha Koskinen (1972),“…Lesa meira

Á hverju ári sendir Landssamband hestamannafélaga landslið til þátttöku á stórmóti, annars vegar Norðurlandamót og hins vegar Heimsmeistaramót íslenska hestsins. Farið er eftir sérstökum lykli við val á keppendum. Heimsmeistaramót íslenska hestsins í hestaíþróttum verður að þessu sinni haldið í Oirschot í Hollandi vikuna 7. – 13. ágúst, á sama stað og mótið var haldið…Lesa meira

Fyrr í júlímánuði kom út bókin Snæfellsjökull eftir Harald Sigurðsson, eldfjallafræðing í Stykkishólmi. Bókin er gefin út af Vulkan ehf. og Eldfjallasafninu í Stykkishólmi. Efnistök bókarinnar eru eldfjallið Snæfellsjökull og allar hliðar þess, þ.e.a.s. jarðsaga, listasaga og mannkynssaga þessa merkilega eldfjalls og svæðisins umhverfis það. Um dreifingu bókarinanr sér Árni Þór Kristjánsson. Hafa má samband…Lesa meira