Fréttir

true

Reynir Hauksson gítarleikari ferðast um Vesturland og flytur flamenco-tónlist

Reynir Hauksson gítarleikari frá Hvanneyri stefnir á tónleikaröð um Vesturland í byrjun næsta mánðar. Verða fyrstu tónleikar hans í Akranesvita á morgun, 1. júlí, en síðan fernir aðrir tónleikar um landshlutann; í Dölum. Reykholti, Stykkishólmi og Hvanneyri. Blaðamaður Skessuhorns hitti tónlistarmanninn yfir kaffibolla og ræddi við hann um tónleikaferðina og tónlistina. Reynir flutti til Granda…Lesa meira

true

Norsk laxavinnsla kaupir ofurkælibúnað frá Skaganum3X

Skaginn 3X og norska laxavinnslan Kråkøy Slakteri skrifuðu nýverið undir samning um kaup þess síðarnefnda á SUB-CHILLING™ kerfi frá Skaganum. Þetta er annað ofurkælikerfið sem Skaginn3X selur til Noregs á þessu ári, en verðgildi þessa samnings er 20 milljónir norskra króna, eða um 245 milljónir íslenskra króna. Vinnslugeta þessarar lausnar sem Kråkøy Slakteri kaupir er…Lesa meira

true

Dagskrá Fjórðungsmóts gengur vel – ýmis úrslit úr forkeppni

Fjórðungsmót Vesturlands í hestaíþróttum hófst í gær á félagssvæði Skugga í Borgarnesi. Mótshaldarar eru hestamannafélögin fimm á Vesturlandi; Dreyri á Akranesi, Faxi í Borgarfirði, Skuggi í Borgarnesi, Glaður í Dölum og Snæfellingur á Snæfellsnesi. Auk þess eiga keppnisrétt í gæðingakeppni á mótinu félagar í hestamannafélögum í Húnavatnssýslum og í Skagafirði. Opnar greinar eru tölt opinn…Lesa meira

true

Fimmtíu ár frá vígslu Bæjarkirkju

Sunnudaginn 2. júlí næstkomandi eru 50 ár frá vígslu Bæjarkirkju í Borgarfirði. Af þessu tilefni verður stutt guðsþjónusta í kirkjunni klukkan 14 og eru allir velkomnir, að sögn sóknarnefndar. Bygging Bæjarkirkju var merkilegt átak og er hún sérstakt og fallegt hús. Sóknarnefnd skipuðu á þessum tíma Ólafur Þórmundsson í Bæ, Jakob Jónsson á Varmalæk og…Lesa meira

true

Sæljós GK dregið upp í fjöru

Síðastliðinn föstudag var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út vegna þess að báturinn Sæljós GK var að sökkva í höfninni í Rifi. Greiðlega gekk að dæla úr bátnum. Þar hafði báturinn verið bundinn við bryggju frá því hann var nærri því að sökkva 16. mars í vor. Hann var þá dreginn til hafnar. Eftir að…Lesa meira

true

Fiskistofa veitir Sjóskip leyfi til að halda tvö mót

Fiskistofa hefur með bréfi sem dagsett var í gær, 28. júní, afturkallað ákvörðun sína frá 10. febrúar 2017 um að synja umsókn Sjóstangveiðifélagsins Skipaskaga um vilyrði fyrir skráningu afla á sjóstangveiðimótum sem félagið hugðist standa fyrir á árinu 2017. Þar með er Sjóskip veitt vilyrði fyrir skráningu afla á tveimur mótum á þessu ári, samanlagt…Lesa meira

true

Skreytt fyrir Írska daga

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefjast á Akranesi í dag, eins og ítarlega hefur komið fram í Skessuhorni. Hátíðin verður sett með formlegum hætti á Akranesi klukkan 13:30 í dag þegar afhjúpað verður listaverk eftir listakonuna GAGA á Akratorgi. Á meðfylgjandi mynd er verið að skreyta á torginu í morgun. Hægt er að nálgast dagskrá Írskra daga…Lesa meira

true

Írskir dagar framundan

Bæjarhátíðin Írskir dagar verður haldin á Akranesi dagana 30. júní – 2. júlí. Með Írskum dögum er þess minnst að írskir menn, bræðurnir Þormóður og Ketill Bresasynir, námu fyrstir manna land við Akranes. Hátíðin hefur fyrir löngu skipað sér fastan sess í bæjarlífi Akurnesinga, enda er hún nú haldin í átjánda sinn. „Stærstu viðburðir hátíðarinnar…Lesa meira

true

Fyrsti laxinn tók í fyrsta kasti í Laxá

Veiði hófst í Laxá í Dölum í gærmorgun og tók fyrsti laxinn í fyrsta kasti. Það var Ævar Sveinsson sem kastaði flugunni á Höskuldsstaðastreng og fiskurinn tók með það sama. En fyrsta daginn veiddust átta laxar og margir þeirra tveggja ára og vel vænir fiskar. Lax er komin um alla á. Boltafiskur slapp af hjá…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur komu færandi hendi

Í síðustu viku færði kvenfélagið Gleim mér ei í Grundarfirði Sjúkrahúsi HVE í Stykkishólmi nýtt sjónvarp að gjöf. Það voru þær Mjöll Guðjónsdóttir formaður og Brynja Guðnadóttir gjaldkeri kvenfélagsins sem afhentu gjöfina. Hrafnhildur Jónsdóttir veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd HVE.Lesa meira