Fréttir

true

Trymbill stendur efstur í forkeppni A flokks

Stóhesturinn Trymbill frá Stóra-Ási stendur efstur að lokinni forkeppni í A flokki á Fjórðungsmóti Vesturlands sem nú stendur yfir í Borgarnesi. Er hann með 8,71 í sýningu Mette Mannseth. Fast á hæla hans með 8,68 í einkunn kemur Sproti frá Innri-Skeljabekku sem Jakob Svavar Sigurðsson sýnir og Atlas frá Lýsuhóli er þriðji efstur en hann…Lesa meira

true

Landeigendur hyggjast hefja gjaldtöku á bílastæðum í óþökk allra hlutaðeigandi

Þrír fjárfestar sem eru landeigendur að Hraunsási II í Hálsasveit í Borgarfirði hafa ákveðið að hefja innheimtu aðstöðugjalds á bílastæðum við Hraunfossa frá og með klukkan 8:00 í fyrramálið 1. júlí. Innheimt verður 1000-2000 króna aðstöðugjald af smábílum, sem smám saman hækkar fyrir jepplinga, jeppa og hópferðabíla, upp í 6000 krónur fyrir rútur. Markmiðið með…Lesa meira

true

Apótek Vesturlands er tíu ára í dag

Það var 30. júní árið 2007 sem Apótek Vesturlands tók til starfa á Akranesi og fagnar því tíu ára afmæli sínu í dag. Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur, stofnaði apótekið og rekur það enn. „Reksturinn hefur gengið vel og árin hafa verið fljót að líða. Það hafa orðið breytingar á markaðnum og ýmislegt gerst á þessum tíma.…Lesa meira

true

Búið að sjósetja Viðey RE í Tyrklandi

Ísfisktogarinn Viðey RE var sjósettur í Tyrklandi í síðustu viku. Skipið er það þriðja í röð raðsmíðaverkefna á ísfisktogurum fyrir HB Granda hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Fyrri tvö skipin eru Engey RE og Akurey AK. Jóhannes Ellert Eiríksson, skipstjóri á Ottó N. Þorlákssyni RE, verður skipstjóri á Viðey.Lesa meira

true

Safe travel dagurinn er í dag

Safe travel dagurinn er átak í forvörnum fyrir ferðamenn og er hluti af verkefninu safetravel.is, sem hefur verið í gangi í allmörg ár. Dagurinn markar einnig upphaf hálendisgæslu björgunarsveitanna sem stendur yfir fram í ágústmánuð, en á þeim tíma standa björgunarsveitir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg vaktina á þremur stöðum á hálendinu, með alls fjóra hópa og…Lesa meira

true

Írskir dagar voru settir á Akranesi í gær

Setning Írskra daga fór fram í blíðviðri við Akratorg í gær. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri setti hátíðina ásamt leikskólabörnum og fólst setningin í afhjúpun á verki GAGA Skorrdal sem er tileinkað Írskum dögum en um risastóra indíána hárkollu í fánalitum Írlands var að ræða. Þegar Gerður (GAGA Skorrdal) er spurð út í verkið segir hún:…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustungan að stækkun Fellaskjóls

Arnór Kristjánsson bóndi á Eiði fékk þann heiður að taka fyrstu skóflustunguna að nýrri viðbyggingu við Dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði. Skessuhorn greindi frá byggingaráformum í frétt í síðustu viku. Sama skófla var nú notuð til verksins og brúkuð var þegar fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu Fellaskjóls á sínum tíma. Arnór var í stjórn dvalarheimilisins…Lesa meira

true

Ólafsvíkurvakan 2017 hefst í dag

Bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka verður haldin um helgina. Hátíðin fer fram annað hvert ár, á móti Sandaragleði sem haldin er utan við Enni árin á móti. Líkt og hefð gerir ráð fyrir verður bænum skipt eftir litum í sex hverfi. Í ár kemur það í hlut bláa og rauða hverfisins að skipuleggja hátíðina sem hefst formlega á…Lesa meira

true

Öllum brögðum beitt til að ná því besta úr viðnum

Sjómaðurinn Vagn Ingólfsson frá Ólafsvík skapar listaverk úr tré. Hann mun á Ólafsvíkurdögum um helgina sýna handverk sitt á samsýningu með Mettu Írisi Kristjándóttur í Átthagastofu Snæfellsbæjar, en þetta er fyrsta sýningin sem Vagn tekur þátt í. „Ég fór að dunda mér í þessu handverki fyrir einhverjum tveimur árum síðan af einhverri alvöru. Bróðir minn…Lesa meira

true

Smiðjan Fönix í stað Vélsmiðju Árna Jóns

Nýir rekstraraðilar tóku á mánudaginn við rekstri Vélsmiðju Árna Jóns í Rifi. Þeir félagar Davíð Magnússon og Sigurður Sigþórsson hafa keypt vörulager fyrirtækisins, en leigja verkfæri og húsnæðið. Þá hafa þeir fært reksturinn undir nýtt nafn; Smiðjan Fönix. „Við munum reka vélsmiðju og verslun og verður reksturinn í svipuðum stíl og áður. Vonandi verður svo…Lesa meira