Fréttir

true

Golfklúbburinn Leynir gerir afrekssamning við Valdísi Þóru

Golfklúbbur Leynir og kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hafa skrifað undir afrekssamning. Það var gert um helgina þegar styrktarmót fyrir Valdísar Þóru fór fram á Garðavelli. „Um er að ræða tímamótasamning sem innifelur stuðning við atvinnukylfinginn Valdísi Þóru sem keppir á Evrópumótaröð kvenna (Ladies European Tour) og leikur undir merkjum Leynis. Golfklúbburinn Leynir hefur markvisst síðustu…Lesa meira

true

Tvö hús víkja fyrir stækkun skólalóðar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi umhverfis Grunnskólann í Borgarnesi. Hún felur meðal annars í sér að lóð skólans verður stækkuð með sameiningu við lóðir sem áður voru Gunnlaugsgata 21 og 21b til að rými verði til stækkunar skólahúsa í framtíðinni. Stefnt verði að flugningi á húsinu við Gunnlaugsgötu 21b, Veggjahúsinu svokallaða og því…Lesa meira

true

Sjötíu skóflustungur að nýju fiskvinnsluhúsi

Það var glatt á hjalla og skemmtileg stund þegar sjötíu börn tóku fyrstu skóflustungurnar að nýju fiskvinnsluhúsi Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði á laugardaginn. Samkvæmt heimildum Skessuhorns var lagerinn af hentugum skóflum tæmdur hjá helstu innflutningsaðilum í landinu. Á lóð við hlið núverandi vinnsluhúss verður byggt um tvö þúsund fermetra hús sem tæknilega verður afar…Lesa meira

true

Héldu borgarafund í Eyja- og Miklaholtshreppi

Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps hélt opinn borgarafund í félagsheimilinu Breiðabliki á sunnudaginn. Páll S Brynjarsson stýrði fundi þar sem hátt í þrír tugir íbúa mættu. Á fundinum fór Eggert Kjartansson oddviti yfir rekstur sveitarfélagsins og Árni Geirsson frá Alta fór yfir vinnu við endurkoðun aðalskipulags. „Þetta var góður fundur, fínar umræður og gott að eiga…Lesa meira

true

Gamall giftingarhringur fór á ótrúlegt flakk

Segja má að gamall giftingarhringur í eigu Guðrúnar Gestsdóttur frá Eskiholti í Borgarhreppi hafi lent á ótrúlegu flakki. Saga hringsins fór eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla frá því í síðustu viku. Þannig var að Guðrún Bjarnadóttir í Hespuhúsinu við Andakílsvirkjun jurtalitar band sem hún framleiðir og selur. Til að finna rétta brúna litinn…Lesa meira

true

Birgir Leifur lék lokadaginn á sex höggum undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur hjá GKG og íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis, átti frábæran lokadag í KPMG bikarnum í Belgíu í gær, en mótið var hluti af evrópsku áskorendamótaröðinni. Fyrir lokadaginn var Birgir Leifur í 14.-16. sæti á tíu höggum undir pari. Eftir níu holur var Birgir Leifur tveimur höggum undir pari og var að missa af…Lesa meira

true

Áhöfn Saxhamars SH sýndu góða öryggisvitund

Á Sjómannadaginn í gær hlaut áhöfn Saxhamars SH 50 viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Á Saxhamri er Friðþjófur Sævarsson skipstjóri og tók Sævar Freyr Reynisson yfirstýrimaður á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar. Svanfríður Anna Lárusdóttir ritari stjórnar Slysavarnafélagsins Landsbjargar afhenti viðurkenninguna sem er farandbikar…Lesa meira

true

Jómfrúarsiglingin á fimmtudaginn

Nú hefur það verið staðfest að ferjan á milli Reykjavíkur og Akraness mun sigla jómfrúarsiglingu sína frá Reykjavík til Akraness næstkomandi fimmtudag klukkan 17. Ferjan er núna í Færeyjum en búist er við því að hún leggi af stað til landsins síðar í dag. „Siglingin frá Bergen til Færeyja gekk ljómandi vel en það hefur…Lesa meira

true

Sviptur á staðnum eftir ofsahraða

Í gærkvöldi stöðvuðu lögreglumenn hjá LVL akstur bifreiðar eftir að hafa mælt ökuhraða hennar 189 km/klst. Leyfilegur ökuhraði var 90 km/klst. Ökumaðurinn viðurkenndi brotið og var sviptur ökuleyfi á staðnum til bráðabirgða.Lesa meira

true

Stækkað veiðihús tekið í notkun við Þverá

Í vetur hefur verið unnið við stækkun á veiðihúsi Þverár við Helgavatnsmúla í Þverárhlíð. Var 250 fermetra stækkun tekin í notkun um liðna helgi þegar fyrstu veiðimenn mættu á svæðið, en veiði hófst í ánni á laugardaginn. Viðbyggingin er öll hin glæsilegasta. Í henni eru sjö rúmgóð tveggja manna herbergi með baði en auk þess…Lesa meira