Fréttir

true

Fjöliðjan á Akranesi tekur nýtt gróðurhús í notkun

Frá því 2015 hefur á lóð Fjöliðjunnar við Dalbraut á Akranesi verið unnið að því að reisa gróðurhús fyrir starfsfólk. Nú er gróðurhúsið tilbúið og notkun á því hafin. Helga Ólafsdóttir stuðningsfulltrúi í Fjöliðjunni heldur utan um starfsemi í gróðurhúsinu. Helga kveðst afar ánægð með að starfsemi sé hafin í húsinu. „Allt frá fyrsta degi…Lesa meira

true

Staðfest að Jómfrúarsigling nýrrar ferju verður á morgun

Nú hefur verið staðfest að ný Faxaflóaferja mun sigla jómfrúarsiglingu sína frá Reykjavík til Akraness á morgun, fimmtudag, klukkan fimm síðdegis. Ferjan er komin til landsins og er nú unnið að því að merkja hana en hún mun ekki heita Akraborgin eins og orðrómur hafði verið um. Við komuna til Akraneshafnar á morgun segir Gunnlaugur…Lesa meira

true

Opnunarmót frisbígolfvallar – Búðardalur Open

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður haldið opnunarmót frisbígolfvallar sem nýverið var settur upp í Búðardal. Mótið hefur fengið titilinn „Búðardalur Open“ í anda stórmóta í golfheiminum. Sindri Geir Sigurðarson heldur utan um mótshaldið og fer skráning fram í gegnum netfangið sindrigeir98@gmail.com Mótið er einstaklingskeppni fyrir 6 ára og eldri en foreldrum er velkomið að aðstoða…Lesa meira

true

Eldur í ketilhúsi FISK í Grundarfirði

Eldur var síðdegis í dag laus í rækjuvinnslu FISK við Nesveg í Grundarfirði. Allt tiltækt slökkvilið og viðbragðsaðilar voru kallaðir til nú á fimmta tímanum. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er fólk ekki í hættu. Eldur var í ketilhúsi þar sem rækjupottur er staðsettur. Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru slökkviliðsmenn að ráða niðurlögum eldsins.    Lesa meira

true

Ellefu húseigendur á Akranesi fá styrki til viðhalds fasteigna

Akraneskaupstaður hefur úthlutað 9,1 milljón króna í styrki til ellefu fasteignaeigenda í bæjarfélaginu til að þeir geti sinnt viðhaldi húsa sinna. Í frétt á vef bæjarins er sagt frá úthlutuninni, en þetta er í annað skipti sem styrkjum af þessum toga er úthlutað. Hús sem hljóta styrki að þessu sinni eru við Mánabraut, Suðurgötu og…Lesa meira

true

Þórsnesið komið til heimahafnar

Nú rétt í þessu sigldi nýtt Þórsnes SH inn til heimahafnar í Stykkishólmi. Skipið var keypt frá Noregi af lítilli útgerð í Álasundi og hét áður Veidar 1. Það er 43,3 metrar á lengd, 10,5 á breidd og skráð 880 brúttótonn. Meðfylgjandi myndir tók Haukur Páll Kristinsson nú síðdegis í dag. Sjá nánar frétt okkar…Lesa meira

true

Sígarettuglóð talin hafa kveikt gróðureld í þjóðgarði

Síðdegis í gær varð Jón Björnsson þjóðgarðsvörður á Snæfellsnesi var við reyk í Beruvíkurhrauni. Kviknað hafði í mosa og lyngi við gömlu vermannagötuna sem liggur frá Sandhólum um Beruvíkurhraun í Dritvík. Logaði eldurinn á um 1500 fm svæði og breiddist hratt um mosabreiðuna sem liggur um 300 metra frá bílastæðinu hjá gönguleiðinni. Þjóðgarðsvörður, landverðir og…Lesa meira

true

Leggja til 6% aukningu þorskkvóta – hann verði 258 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun ráðleggur 6% aukningu á aflamarki þorsks byggt á aflareglu stjórnvalda. Kvótinn yrði samkvæmt því 258 þúsund tonn í stað 244 þúsund tonna á yfirstandandi fiskveiðiári. Samkvæmt stofnmatinu í ár stækkaði viðmiðunarstofninn lítillega milli áranna 2016 og 2017. Búist er við að þegar þorskárgangarnir frá 2014 og 2015 komi inn í viðmiðunarstofninn 2018 og 2019…Lesa meira

true

Markaðsráð óskar eftir undanþágu frá samkeppnislögum

Markaðsráð kindakjöts hefur óskað eftir því við Samkeppniseftirlitið að veitt verði undanþágu frá samkeppnislögum vegna samstarfs sláturleyfishafa hér á landi um útflutning og markaðssetningu íslensks kindakjöts á erlendum mörkuðum. „Með samstarfinu er markmiðið að stuðla samhliða að betri nýtingu fjármuna og auknum árangri í útflutningi og markaðssetningu,“ segir í tilkynningu frá Markaðsráði. „Við erum að…Lesa meira

true

Flugvél snertilent á golfvelli þar sem fram fór mót barna

Meðfylgjandi mynd var tekin um sexleitið í gærkvöldi á Garðavelli á Akranesi. Milli trjánna sést í flugvél sem snertilent var á vellinum skömmu síðar. Flugmaður vélarinnar tók hana hins vegar á loft að nýju en lenti á malarvegi sem liggur samsíða skógræktinni. Meðan þessu fór fram var golfvöllurinn fullur af fólki og m.a var í…Lesa meira