Fréttir

true

Átak framundan í skógrækt í Reykholti

Skógræktarfélag Borgarfjarðar hefur boðað til samfélagsátaks dagana 15. og 20. júní við gróðursetningu trjáa, en félagið ætlar að gróðursetja um 50 þúsund trjáplöntur í skógræktarlandið í Reykholti í sumar. „Miklar vonir eru bundnar  við að innan fárra ára muni einn fegursti skógur héraðsins og sá umfangsmesti vaxa upp í Reykholsdal til yndis og nota fyrir…Lesa meira

true

Altjón þegar færeysk uppsjávarverksmiðja brann

Stórbruni varð í uppsjávarverksmiðju færeyska fyrirtækisins Varðin Pelagic P/F í Tvøroyri á Suðurey í lok síðustu viku. Verksmiðjuhúsin og allur búnaður sem í húsunum var eru rústir einar eftir brunann. Færeyska þjóðin fylgdist með brunanum í beinni útsendingu í sjónvarpi, en ekki tókst að ráða niðurlögum eldsins fyrr en tvö öflug skip voru komin að…Lesa meira

true

Laus pláss í ferð um Síldarmannagötur

Nokkur pláss eru laus í árlega pílagrímagöngu sem Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum stendur fyrir um Síldarmannagötur. Farið verður sunnudaginn 25. júní, safnast saman hjá vörðunni við Botnsvoginn í Hvalfirði. „Við göngum rólega samkvæmt „sjö lyklum“ pílagrímsins yfir í Fitjakirkju, snæðum pílagrímasúpu og loks flytur rúta hópinn til baka í Hvalfjörðinn. Ef þú vilt koma með,…Lesa meira

true

Stefnir í metfjölda við meistaranám á Bifröst

Alls voru 124 nemendur úr öllum deildum útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn síðastliðinn laugardag. Í ávarpi sínu vék Vilhjálmur Egilsson rektor að því að skólinn hafi treyst stöðu sína sem gæðaskóli og áfram verði sótt fram á þeim vettvangi. Þá hafi aðsókn í meistaranám verið sérstaklega góð og hópur meistaranema sem kemur…Lesa meira

true

Hana komið til bjargar

Matvælastofnun greinir frá því að nýlega hafi borist ábending um yfirgefinn hana í fjárhúsi eftir að eigendur höfðu hætt búskap og flutt erlendis. Ekki kemur fram hvar á landinu þetta var. Eftir mikið klifur og basl náðist að handsama hanann. Hann var orðinn nokkuð grannur en fékk nóg að éta og drekka enda svangur og…Lesa meira

true

Nýtt Þórsnes SH á leið til Stykkishólms

Þórsnes ehf. í Stykkishólmi hefur fest kaup á nýju Þórsnesi SH og er skipið nú á leið til Íslands frá Noregi. Skipið var áður gert út af lítilli útgerð í Álasundi í Noregi og hét Veidar 1. Skipið er 43,3 metrar á lengd, 10,5 á breidd og skráð 880 brúttótonn. Gamla Þórsnesi hefur nú verið…Lesa meira

true

Samvinna þegar fyrsta Þverárlaxi sumarsins var landað

„Þetta var hundrað prósent samvinna hjá þeim Andreu og Hilmari að landa fyrsta laxinum í Þverá á opunardaginn,“ sagði Árni Pétur Hilmarsson í samtali við Skessuhorn. Laxinn veiddist í Kirkjustrengnum við Norðtungu í gærmorgun. „Hilmar setti í laxinn en Andrea landaði honum síðan. Þetta var mjög skemmtilegt,“ sagði Árni Pétur ennfremur. Þverá gaf fyrsta hálfa…Lesa meira

true

„Giftingin fór fram á heimili prestsins og tók sjö mínútur“

Nú um miðjan þennan mánuð eiga þau Cýrus Danelíusson og Guðríður Þorkelsdóttir á Hellissandi 70 ára brúðkaupsafmæli. Slík brúðkaupsafmæli eru ýmist kölluð járn- eða platínubrúðkaup. Cýrus er 91 árs og Guðríður 88 ára þannig að þau voru 18 og 21 árs þegar þau giftust. Þau eru bæði frá Hellissandi og hafa búið þar alla tíð.…Lesa meira

true

Sérstök stuðningsmannasvæði við Laugardalsvöll

Í undirbúningi er sérstakt stuðningsmannasvæði (Fan Zone) fyrir leiki karlalandsliðs Íslands gegn Króatíu 11. júní og kvennalandsliðsins gegn Brasilíu 13. júní n.k. Þar geta áhorfendur hitað upp fyrir leikina og byggt upp stemningu. Að auki stendur þeim sem ekki náðu að tryggja sér miða á leik Íslands og Króatíu á sunnudag til boða að horfa…Lesa meira