Fréttir

true

Nýr björgunarbátur formlega tekinn í notkun á sjómannadaginn

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land á sunnudaginn. Á Akranesi verður fjölbreytt dagskrá eins og lesa má um í síðasta Skessuhorni. Meðal annars verður klukkan 13:30 athöfn við gömlu Akraborgarbryggjuna þar sem Jón Gunnlaugsson, nýr björgunarbátur Björgunarfélags Akraness, verður tekinn í notkun og honum formlega gefið nafn. Báturinn var keyptur notaður frá Bretlandi fyrir…Lesa meira

true

Íhuga að leita réttar síns vegna vanefnda á greiðslum úr Jöfnunarsjóði

Sveitarstjórn Borgarbyggðar fór á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag yfir lyktir Alþingis við þinglok um mánaðamótin um meðferð fjármuna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir andstöðu við þá ákvörðun Alþingis frá 1. júní sl. að breyta lögum um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að helmingi þess fjár sem situr í Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna álagningu s.k. bankaskatts…Lesa meira

true

Bjartsýni á góðan bata eftir uppskurð í gær

Í vor greindist Samira Suleman fyrirliði kvennaliðs Víkings Ólafsvíkur með æxli í kviðarholi. Samira fór í aðgerð á sjúkrahúsinu á Akranesi í gær þar sem æxlið var fjarlægt. Í fréttatilkynningu sem Víkingur sendi frá sér í morgun segir að sögn læknisins sem framkvæmdi aðgerðina hafi hún gengið afar vel og bjartsýni sé á að Samira…Lesa meira

true

Horfið frá íbúakosningu um skotæfingasvæði

Sveitarstjórn Borgarbyggðar felldi á fundi sínum 8. júní síðastliðinn tillögu þess efnis að fram fari íbúakosning um staðsetningu skotæfingasvæðis í landi Bjarnhóla í Hamarslandi. Áður hafði byggðarráð samþykkt að íbúakosning yrði undirbúin. Í tillögunni sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar segir að ljóst sé að skiptar skoðanir eru á meðal íbúa um þessa staðsetningu,…Lesa meira

true

Fjögur smáhýsi að rísa við tjaldsvæðið í Stykkishólmi

Við tjaldsvæðið í Stykkishólmi eru nú að rísa fjögur smáhýsi sem leigja á út sem gistirými fyrir ferðamenn. Það eru hjónin Eydís Jónsdóttir og Kristján Auðunn Berntsson sem standa að byggingu smáhýsanna og búast þau við því að þau verði klár fyrir næsta sumar. „Við munum vinna að því að gera þau tilbúin í sumar…Lesa meira

true

Ásbjörn RE seldur til Íran

HB Grandi hefur gengið frá sölu á ísfisktogaranum Ásbirni RE 50 til íransks útgerðarfélags og verður togarinn afhentur kaupendum í næstu viku. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, forstjóra HB Granda, er söluverð togarans 450 þúsund dollarar, eða jafnvirði um 45 milljónir íslenskra króna. Samkvæmt Jónasi Guðbjörnssyni, fjármálastjóra HB Granda, er endanlegur afhendingardagur ekki kominn á hreint…Lesa meira

true

Farið á fjörur – sýningaropnun í Akranesvita

Á sjómannadaginn, sunnudaginn 11. júní, verður í Akranesvita opnuð einkasýning á verkum Hildar Björnsdóttur og nefnist sýningin Farið á fjörur. Verkin eru unnin út frá ljósmyndum sem Hildur hefur tekið á Íslandi undanfarin ár, en Hildur er starfandi listakona í Noregi. Ljósmyndirnar hafa flestar verið teknar við sjávarsíðuna á Vesturlandi, þar sem landslagið og náttúran…Lesa meira

true

Gervigras verður lagt yfir Ólafsvíkurvöll í haust

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í byrjun þessa mánaðar var samþykkt að lagt verði gervigras yfir Ólafsvíkurvöll. Stefnt er að því að hefja framkvæmd að loknu keppnistímabili í haust og er áætlaður kostnaður 150 milljónir króna. Í fundargerð Snæfellsbæjar segir; „Með því að fara í þá framkvæmd þá nýtist núverandi aðstaða og jafnframt gætu allir flokkar…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá um sjómannadagshelgina

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 11. júní næstkomandi. Af því tilefni fara fram hátíðarhöld víðast hvar, þar á meðal í nokkrum byggðarlögum á Vesturlandi. Ýmislegt verður í boði yfir sjómannadagshelgina, þar á meðal í Grundarfirði, á Akranesi, í Stykkishólmi og Snæfellsbæ. Í Grundarfirði standa hátíðarhöldin yfir alla sjómannadagshelgina og hefjast í dag…Lesa meira

true

Nýr eigandi og Ferstikluskáli enduropnaður

Björn Páll Fálki Valsson, sem býr í Hvalfjarðarsveit, hefur keypt Ferstikluskála og opnað þar vegasjoppu. Með kaupunum fylgdi hús og lóð, en auk þess keypti hann Litla hvalasafnið sem verið hefur í húsinu og ýmsan búnað af fyrrum rekstraraðila, Kristjáni Karli Kristjánssyni. „Hér munum við verða með opið í sumar alla daga frá klukkan 10-19…Lesa meira