Íþróttir

true

Háspenna í Hólminum

Snæfell beið lægri hlut gegn Keflavík, 75-84, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi og fengu áhorfendur æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Gestirnir höfðu heldur yfirhöndina í upphafi og leiddu með sex stigum um miðjan fyrsta leikhulta. Þá tóku Snæfellskonur góða…Lesa meira

true

Aðventumót púttara í Borgarbyggð

Hið árlega aðventumót  púttara í Borgarbyggð fór fram 17. desember síðastliðinn í Eyjunni í Brákarey. Til leiks mættu ellefu konur og þrettán karlar. Keppt var með og án forgjafar. Konurnar voru í feikna stuði þennan dag og skildu karlana hreinlega eftir. Guðrún Helga Andresdóttir vann kvennaflokkinn án forgjafar á 56 höggum. Önnur varð Anna Ólafsdóttir…Lesa meira

true

Stefán og Tryggvi valdir í landsliðið

Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp A landsliðs karla í knattspyrnu sem leikur tvo vináttuleiki í Bandaríkjunum nú í janúar. Fyrri leikurinn verður gegn Kanada 15. janúar og sá síðari gegn El Salvador 19. janúar. Báðir voru þeir lykilmenn í liði ÍA í Pepsi Max deildinni á liðnu…Lesa meira

true

Þrjár framlengja við ÍA

Knattspyrnukonurnar Erla Karitas Jóhannesdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir og María Björk Ómarsdóttir endurnýjuðu samninga sína við ÍA skömmu fyrir jól. Allar eru þær fæddar árið 2002 og skrifuðu undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2021. Erla Karitas hefur leikið 35 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim fimm mörk. Sigrún Eva á að baki 46 leiki…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagríms

Skallagrímskonur lyftu sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með góðum sigri á Haukum í Borgarnesi í gær. Borgnesingar höfðu yfirhöndina allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 73-59. Skallagrímskonur voru mun sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu 19-9 að honum loknum. Þær héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta, voru komnar með…Lesa meira

true

Góður sigur Snæfells

Snæfell bar sigurorð af Breiðabliki í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær, 67-61. Leikið var í Stykkishólmi og höfðu Snæfellskonur undirtökin allan leikinn. Þær voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum og leiddu með ellefu stigum að honum loknum, 21-10. Blikar minnkuðu muninn í þrjú stig í upphafi annars leikhluta, en þá tóku Snæfellskonur við sér…Lesa meira

true

Jakob Svavar er Íþróttamaður Akraness 2019

Jakob Svavar Sigurðsson, hestaíþróttamaður úr Hestamannafélaginu Dreyra, er Íþróttamaður Akraness 2019. Kjörinu var lýst við hátíðlega athöfn á sjöunda tímanum nú í kvöld, sem fyrr á þrettándanum. Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur í kjörinu og Alexander Örn Kárason, kraftlyftingamaður úr Kraftlyftingafélagi Akraness, hreppti þriðja sætið. Jakob Svavar hefur verið í fremstu…Lesa meira

true

Tólf stiga tap eftir hörkuleik

Skallagrímskonur mættu Íslandsmeisturum Vals í fyrsta leik liðsins eftir jólafrí. Leikið var í Reykjavík í gærkvöldi. Um hörkuleik var að ræða, en seint í leiknum náðu meistararnir yfirhöndinni og sigruðu með tólf stigum, 70-58. Leikurinn fór fremur rólega af stað og Valur leiddi með fjórum stigum eftir sjö mínútna leik, 10-6. Þá áttu Skallagrímskonur góða…Lesa meira

true

Þrjár framlengja við ÍA

Knattspyrnukonurnar Erla Karitas Jóhannesdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir og María Björk Ómarsdóttir endurnýjuðu samninga sína við ÍA skömmu fyrir jól. Allar eru þær fæddar árið 2002 og skrifuðu undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2021. Erla Karitas hefur leikið 35 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim fimm mörk. Sigrún Eva á að baki 46 leiki…Lesa meira

true

Gamlársmót Gústa á morgun

Hið árlega Gamlársmót Gústa í sundi verður haldið í Jaðarsbakkalaug á Akranesi kl. 10:00 á morgun, laugardaginn 28. desember. Það er Ágúst Júlíusson, sundmaður á Akranesi, sem stendur fyrir mótinu. Verður það með svipuðu sniði og fyrri ár, keppt í stuttum sundgreinum og öllum velkomið að taka þátt hvort sem þeir eru núverandi eða fyrrverandi…Lesa meira