Íþróttir

true

Snæfell sigraði Vesturlandsslaginn

Vesturlandsslagur var í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi þegar Skallagrímur og Snæfell mættust í Borgarnesi. Um jafnan og spennandi leik var að ræða en að lokum fór svo að Snæfellingar sigruðu með 110 stigum gegn 101 stigi Borgnesinga. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Þá tóku Skallagrímsmenn smá rispu áður en Snæfellingar…Lesa meira

true

Valdís Þóra og Guðmundur Ágúst kylfingar ársins

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru kylfingar ársins 2019. Golfsamband Íslands greindi frá vali sínu á fimmtudag. Er þetta í 22. sinn sem tveir kylfingar eru valdir, karl og kona. Valdís hefur þrisvar áður hlotið þessa viðurkenningu en Guðmundi Ágústi hlotnast hún nú í fyrsta sinn. Valdís…Lesa meira

true

Höfðu ekki erindi sem erfiði

Skallagrímskonur töpuðu naumlega gegn Keflvíkingum, 69-63, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Eftir að hafa misst Keflavíkurliðið langt fram úr sér í síðari hálfleik náðu Skallagrímskonur að hleypa mikilli spennu í leikinn undir lokin. Því miður dugði það þeim þó ekki til að fá eitthvað…Lesa meira

true

Eltu allan leikinn

Snæfell og Haukar mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Hafnarfirði. Haukar leiddu nánast allan leikinn og þó að Snæfellskonur hafi gert atlögu að þeim í þriðja leikhluta sigruðu Haukar að endingu með 20 stigum, 101-81. Haukakonur náðu undirtökunum snemma leiks. Varnarleikur Snæfellskvenna var ekki upp á marga fiska framan…Lesa meira

true

Skallagrímskonur mæta ÍR í bikarnum

Dregið var í átta liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik í hádeginu í gær. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 19. og 20. janúar næstkomandi. Sigurvegarar þessara leikja komast í fjögurra liða úrslit sem fara fram í Laugardalshöll dagana 13. og 14. febrúar næstkomandi. Skallagrímskonur voru einar eftir í pottinum af Vesturlandsliðunum.…Lesa meira

true

Með takmarkaðan þátttökurétt á næsta ári

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 50. sæti á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem fram fór í Kenýa um síðustu helgi. Eftir að hafa lyft sér upp í 27. sæti mótsins með frábærum þriðja keppnishring lauk hún keppni með sveiflukenndum hring í gær. Eftir níu holur var Valdís á sex höggum yfir pari, eftir að hafa…Lesa meira

true

Borgnesingar burstaðir

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn Breiðabliki, 131-89, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Leikið var í Kópavogi. Heimamenn höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu. Þeir voru öflugri í upphafsfjórðungnum og leiddu með tíu stigum að honum loknum, 32-22. Þeir héldu síðan áfram að auka forskot sitt jafnt og þétt í…Lesa meira

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn Selfossi þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir undirtökunum í þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með 104 stigum gegn 81. Snæfellingar leiddu í upphafi leiks áður en gestirnir tóku góða rispu og komust átta stigum…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Snæfellskonur eru úr leik í Geysisbikar kvenna í körfuknattleik, eftir tap gegn ríkjandi bikarmeisturum Vals. Leik lauk í Stykkishólmi núna fyrir skemmstu með sjö stiga sigri Vals, 62-69. Snæfellskonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum  og komust í 18-8 seint í leikhlutanum. Þá tóku Valskonur við sér og náðu að minnka muninn niður í eitt stig áður…Lesa meira

true

Lyfti sér upp um 30 sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir lék þriðja hringinn á Magical Kenya Ladies Open mótinu á Evrópumótaröð kvenna í dag. Fyrir hringinn var hún á sex höggum yfir pari og sat í 57. mótsins. Hún lék afar vel í dag, fór þriðja hringinn á þremur undir pari og lyfti sér upp um hvorki fleiri né færri en 30…Lesa meira