Íþróttir

true

Gestirnir númeri of stórir

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki, 67-69, þegar liðin mættust í Borgarnesi í gærkvöldi. Gestirnir úr Kópavogi reyndust einu númeri of stórir fyrir Borgnesinga að þessu sinni. Breiðablik tók stjórn leiksins snemma í sínar hendur og lét hana aldrei af hendi. Jafnræði var með liðunum framan af upphafsfjórðungnum. Blikar höfðu heldur yfirhöndina en Skallagrímsmenn fylgdu þeim eins…Lesa meira

true

Vel heppnað Akranesmeistaramót

Akranesmeistaramótið í sundi var haldið í Jaðarsbakkalaug miðvikudaginn 10. október síðastliðinn. Mótið var mjög vel heppnað, að því er fram kemur á Facebook-síðu Sundfélags Akraness. Alls tóku 28 sundmenn þátt, 11 ára og eldri, auk þess sem fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á bakkann og hvöttu sundmennina áfram. Úrslit urðu þau að Akranesmeistarar í flokki…Lesa meira

true

Sannfærandi sigur Skallagríms

Skallagrímskonur kræktu í fyrstu stig vetrarins í Domino‘s deildinni þegar þær unnu sannfærandi sigur á liði Grindavíkur, 74-59. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímur hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks, en gestirnir á Grindavík voru þó aldrei langt undan. Þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta höfðu Borgnesingar fjögurra stiga forskot, 14-10, en…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Íslandsmeisturum Hauka, 110-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Reykjavík. Snæfellskonur mættu ákveðnar til leiks, léku sterka vörn og höfðu yfiröndina á upphafsmínútunum. Valskonur fundu þó taktinn snemma og voru búnar að jafna í 10-10 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður, 10-10.…Lesa meira

true

Vladimir rekinn frá Snæfelli

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Snæfells hefur ákveðið að rifta samningi sínum við körfuknattleiksþjálfarann Vladimir Ivankovic, sem þjálfað hefur karlalið Snæfells frá því haustið 2018. Baldur Þorleifsson og Jón Þór Eyþórsson hafa tekið tímabundið við þjálfun liðsins, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Snæfells. Vladimir tók við karlaliði Snæfells fyrir keppnistímabilið 2018-2019. Ungt lið Snæfells…Lesa meira

true

„Erum allir á seinni hlutanum á ferlinum“

Grundfirðingar hefja leik í 3. deild karla í körfuknattleik næstkomandi laugardag, 12. október, þegar þeir mæta B-liði Skallagríms á heimavelli. Aðalsteinn Jósepsson, Steini Jobba, er spilandi þjálfari liðs Grundfirðinga eins og á síðasta ári. Aðspurður segir hann að stemningin í liðinu gæti verið betri núna í vikunni fyrir mót. „Það hafa verið mikil forföll á…Lesa meira

true

Stórt tap á heimavelli

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn sterku Vestraliði, 64-114, þegar liðin mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir frá Ísafirði náðu undirtökunum snemma leiks, leiddu 9-14 um miðjan fyrsta leikhluta, bættu síðan í og höfðu 13 stiga forystu að honum loknum, 31-18. Þeir settu…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik

Skallagrímur mátti játa sig sigraðan gegn sterku liði Álftaness, 90-65, í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Álftanesi á föstudagskvöld. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Heimamenn leiddu snemma í fyrsta leikhluta, en Skallagrímsmenn komust yfir stutta stund áður en Álftnesingar tóku forystuna að nýju seint í leikhlutanum. Leiddu þeir…Lesa meira

true

Garðar leggur skóna á hilluna

Knattspyrnumaðurinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Þetta staðfestir Garðar í samtali við Skessuhorn. „Ég er að flytjast búferlum til Ítalíu og með tilliti til meiðslasögu minnar til síðustu tveggja ára þá þótti mér núna vera hentugur tími til að hengja skóna upp,“ segir hann og bætir því við að hann…Lesa meira

true

Snæfellskonur burstuðu Blika

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 76-48, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru sterkari allan leikinn og það var ekki nema í tvisvar í fyrri hálfleik að gestirnir sýndu einhverja viðspyrnu. Snæfell skoraði fyrstu sjö stigin en gestirnir minnkuðu síðan muninn í 10-7…Lesa meira