Íþróttir

true

Naumt tap í fyrsta leik

Skallagrímskonur máttu sætta sig við sex stiga tap gegn Haukum, 66-72, eftir jafnan og spennandi baráttuleik í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna. Leikurinn fór fram í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks, leiddu mest með tíu stigum í fyrsta leikhluta en höfðu fimm stiga forskot að honum loknum, 22-17. Gestirnir komust betur…Lesa meira

true

Unnu stórsigur á Levadia

Piltarnir í 2. flokki ÍA unnu stórsigur á eistneska liðinu Levadia Tallin, 4-0, þegar liðin mættust í fyrstu umferð unglingadeildar UEFA í gær. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn komust yfir á 22. mínútu þegar Sigurður Hrannar Þorsteinsson, markakóngur Íslandsmótsins, skoraði með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik,…Lesa meira

true

„Spennandi uppbygging framundan“

-segir Manuel Rodriguez, þjálfari karlaliðs Skallagríms Manuel Rodriguez er kominn í Borgarnes og mun þjálfa karlalið Skallagríms í 1. deildinni á komandi vetri. Manuel þekkja Borgnesingar vel. Hann þjálfaði kvennalið Skallagríms frá 2015-2017 með góðum árangri, kom liðinu upp í úrvalsdeild og leiddi það í úrslit bikarsins og í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segist ánægður…Lesa meira

true

„Aðalmarkmiðið að búa til góða leikmenn“

– segir Vladimir Ivankovic, þjálfari karlaliðs Snæfells   „Ég held að við verðum betri en á síðasta ári. Við höfum bætt okkur á stöðum þar sem við vorum í vandræðum í fyrra, eins og undir körfunni, fengum leikmenn til að leysa þær stöður. Að því sögðu erum við ennþá með mjög ungt lið. Strákarnir í…Lesa meira

true

Karfan að byrja

Fimm Vesturlandslið hefja leik í Íslandsmótinu í körfuknattleik í þessari viku; kvennalið Skallagríms og Snæfells leika sinn fyrsta leik í Domino‘s deildinni í kvöld, karlalið Skallagríms og Snæfells hefja leik í 1. deild á föstudaginn og þá hóf ÍA leik í 2. deild karla síðastliðinn sunnudag. Rætt er við forsvarsmenn þessara liða í Skessuhorni vikunnar…Lesa meira

true

Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

Spá þjálfara, fyrirliða og formanna vegna komandi tímabils í Domino‘s deildum karla og kvenna, sem og 1. deildum karla og kvenna var birt á kynningarfundi deildanna í hádeginu í dag. Snæfelli er spáð 5. sæti í Domino‘s deild kvenna en Skallagrímskonum 7. sæti. Í 1. deild karla er Skallagrími spáð 8. og næstneðsta sætinu en…Lesa meira

true

Steinlágu í lokaleiknum

Skagamenn steinlágu gegn Víkingi R., 1-5, þegar liðin mættust í lokaleik Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á laugardaginn. Það var hvorki barist við fall né um titla í leiknum á Akranesvelli, en það kom þó ekki í veg fyrir að bæði lið mættu ákveðin til leiks. Skagamenn voru ákafir í…Lesa meira

true

Tímabilið hafið hjá blakliði Grundarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í blaki í Grundarfirði hóf tímabilið með heimaleik fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Liðið vann sér þátttökurétt í næstefstu deild eftir góðan árangur í annarri deildinni í fyrra. UMFG tók á móti b-liði Aftureldingar í sínum fyrsta leik og fyrsta hrinan var jöfn og spennandi. Liðin skiptust á að taka forystu í hrinunni en…Lesa meira

true

Guðrún þjálfar Skallagrím

Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur verið ráðin þjálfari Skallagríms í meistaraflokki kvenna. Mun hún því stýra liðinu í Domino‘s deildinni á komandi vetri. Guðrún er 32 ára gömul og uppalin hjá Skallagrími. Hún lék með yngri flokkum félagsins og á að baki fjölda leikja í efstu deild með Skallagrími, Haukum og KR. Á sínum leikmannaferli hefur…Lesa meira

true

Skellur í síðasta leiknum

Skallagrímsmenn fengu skell í lokaleik 3. deildar karla í knattspyrnu þegar þeir töpuðu 5-0 gegn Reyni S. á útivelli síðastliðinn laugardag. Elfar Máni Bragason kom Suðurnesjaliðinu yfir á 16. mínútu og Gauti Þorvarðarson bætti öðru marki við á 24. mínútu. Magnús Magnússon skoraði þriðja mark Reynis á 36. mínútu og heimamenn leiddu 3-0 í hálfleik.…Lesa meira