Íþróttir

true

Jafnt norðan heiða

ÍA og KA skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Akureyri í gærdag. Leikurinn fór fjörlega af stað og Skagamenn komust yfir strax á 10. mínútu leiksins. Stefán Teitur Þórðarson tók aukaspyrnu frá hægri, sendi boltann fyrir markið á Viktor Jónsson sem skoraði…Lesa meira

true

Markaregn og dramatík

Kári tapaði gegn Þrótti frá Vogum í dramatískum markaleik þegar liðin mættust í tólftu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Eitt mark var skorað í fyrri hálfleik og þar var á ferðinni Miroslav Babic, sem kom gestunum af Suðurnesjum yfir á 21. mínútu leiksins. Hlynur Sævar Jónsson jafnaði metin…Lesa meira

true

Öflugri allan leikinn

Víkingur Ó. sigraði Hauka 2-0 þegar liðin mættust í tólftu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og það voru heimamenn sem voru sterkari allan leikinn. Ólafsvíkingar mættu ákveðnir til leiks, áttu fín færi í upphafi og komust yfir á 13. mínútu. Vidmar Miha skaut að marki utan teigs. Skoti…Lesa meira

true

Helena og Aníta hættar hjá ÍA

Þær Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennaliðs ÍA og Aníta Lísa Svansdóttir aðstoðarþjálfari hafa óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Knattspyrnufélags ÍA. Helena og Aníta tóku við þjálfun ÍA haustið 2016 og hafa því verið við stjórnvölinn hjá meistaraflokki kvenna í tæp þrjú ár. „Knattspyrnufélag ÍA óskar…Lesa meira

true

Inn vildi boltinn ekki

Skagakonur máttu sætta sig við 0-1 tap gegn Augnabliki þegar liðin mættust í áttundu umferð Inkasso deildar kvenna í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi í gærkvöldi. Gestirnir úr Kópavogi voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu eina mark leiksins á 19. mínútu. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir tók sprett upp vinstri kantinn, sendi á fjærstöng þar sem…Lesa meira

true

Jafnt suður með sjó

ÍA og Grindavík gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust suður með sjó í tólftu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Bæði lið fengu sín færi í upphafi leiks. Skagamenn komust í dauðafæri þegar þeir hirtu boltann af Grindvíkingum í öftustu línu en tókst ekki að nýta það. Heimamenn fengu síðan dauðafæri eftir…Lesa meira

true

Valdís og Stefán eru Akranesmeistarar í golfi

Valdís Þóra Jónsdóttir og Stefán Orri Ólafsson fögnuðu sigri í meistaraflokkum kvenna og karla á meistaramóti Golfklúbbsins Leynis 2019, en mótinu lauk á laugardag. Valdís lék best allra í mótinu, spilaði á samtals átta höggum undir pari á fjórum keppnishringjum. Hún fór hringina fjóra á samtals 280 höggum og sigraði í meistaraflokki kvenna, en Hulda…Lesa meira

true

Fýluferð Borgnesinga

Skallagrímsmenn máttu sætta sig við 4-0 tap þegar þeir mættu Álftnesingum í 3. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Bessastaðavelli. Heimamenn fengu óskabyrjun þegar Brandon Nathaniel Wellington kom þeim yfir strax á 1. mínútu leiksins. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn því yfir í hléinu. Arnar Már Björgvinsson…Lesa meira

true

Stórsigur Snæfells

Snæfell vann 5-1 stórsigur á KB þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í Stykkishólmi og var leikurinn fjörugur svo ekki sé meira sagt. Snæfellingar komu boltanum þrisvar sinnum í netið í fyrri hálfleik, en öll voru mörkin dæmd af. Gestirnir úr KB skoruðu á 22. mínútu með glæsilegu…Lesa meira

true

Fundu sig ekki suður með sjó

Ólafsvíkingar áttu ekki góðan dag þegar þeir töpuðu úti gegn Njarðvíkingum í elleftu umferð 1. deildar karla í knattsyrnu á í gær, 3-0. Fyrir leikinn höfðu heimamenn tapað sjö leikjum í röð en gengi Víkings Ó. hefur verið upp og ofan undanfarnar vikur. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru sterkari í fyrri hálfleik. Ólafsvíkingar…Lesa meira