
Ekki verður keppt meira í Íslandsmótinu í körfuknattleik á yfirstandandi keppnistímabili. Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum í dag að hætta keppni í tveimur efstu deildum karla og kvenna vegna Covid-19 veirunnar. Áður hafði verið ákveðið að hætta keppni í neðri deildum og Íslandsmóti yngri flokka. Engir Íslandsmeistarar verða krýndir í meistaraflokkum karla og kvenna…Lesa meira








