Íþróttir

true

Driplað í gegnum ástandið

Nú þegar erfitt er að halda úti æfingum í körfuknattleik, sem öðrum íþróttum, hefur Körfuknattleikssamand Íslands ákveðið að láta ástandið ekki koma í veg fyrir æfingar. „Það er mikilvægt í því ástandi sem er núna að krakkar jafnt sem fullorðnir næri nú vel líkama og sál með góðri æfingu og því er um að gera…Lesa meira

true

Knattspyrnuleikjum frestað

Öllum knattspyrnuleikjum á vegum Knattspyrnusambands Íslands hefur verið frestað í ljósi samkomubanns sem lýst var yfir á föstudag. Stjórn KSÍ ákvað því að fresta öllum leikjum á vegum sambandsins, landsliðsæfingum og tengdum viðburðum á meðan samkomubann er í gildi. Stjórnin hvatti aðildarfélög sín til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu…Lesa meira

true

Keppni hætt í mörgum deildum og flokkum

Íslandsmótinu í körfuknattleik er lokið í 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla, unglingaflokki karla, stúlknaflokki, drengjaflokki, 10., 9., 8., og 7. flokkum drengja og stúlkna sem og í minnibolta 9, 10 og 11 ára drengja og stúlkna. Enginn deildar- eða Íslandsmeistari verður krýndur í þessum deildum og flokkum. Mótanefnd og stjórn Körfuknattleikssambands Íslands…Lesa meira

true

Valdís Þóra náði sínum fjórða besta árangri

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr GL lauk í dag leik á Investec South AFrican Women’s Open mótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Í allan dag var Valdís í baráttunni um sigurinn en varð að lokum að láta sér sjöunda sætið lynda, sem engu að síður er frábær árangur. Á golfvefnum kylfingur.is er greint frá…Lesa meira

true

Borgnesingar lágu gegn toppliðinu

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum þegar þeir heimsóttu topplið Hattar austur á Egilsstaði í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn náðu að hanga í Hetti í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn öll vold á vellinum í síðari hálfleik og sigruðu að lokum örugglega, 85-66. Heimamenn höfðu yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta…Lesa meira

true

Snæfellingar burstaðir

Snæfellingar steinlágu gegn sterku liði Breiðabliks, 114-69, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Kópavogi í gærkvöldi. Blikar réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og náðu snemma öruggri forystu. Snæfellingar áttu slakan upphafsfjórðung á meðan Breiðablik lék á als oddi. Heimamenn leiddu með 34 stigum gegn tólf eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar…Lesa meira

true

Fýluferð í Vesturbæinn

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR á útivelli í gær. KR-ingar réðu ferðinni nánast frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum með 15 stigum, 65-50. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stigin í leiknum og voru yfir þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum, 8-9. Þá tóku KR-ingar góða rispu og leiddu með níu stigum eftir fyrsta…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells

Snæfellskonur unnu Grindavík örugglega, 79-65, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi og það voru Snæfellskonur sem höfðu yfirhöndina nánast frá fyrstu mínútu. Leikurinn fór heldur rólega af stað. Snæfellskonur leiddu 6-5 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Eftir það náðu þær góðum kafla, skoruðu 13 stig gegn…Lesa meira

true

Þórdís í landsliðsþjálfarateymið

Nýverið greindi Fimleikasamband Íslands frá þjálfarahópi landsliðsins fyrir Evrópumótin í hópfimleikum 2020. Þórdís Þráinsdóttir, yfirþjálfari Fimleikafélags Akraness, er þar á meðal þjálfara í teymi blandaðs liðs unglinga. Evrópumótið verður haldið í Ballerup Super Arena í Kaupmannahöfn dagan 14.-17. október næstkomandi. Fimleikasamband Íslands stefnir að því að senda tvö fullorðinslið til keppni; kvennalið og blandað lið,…Lesa meira

true

Leiðir skildu í seinni hálfleik

Snæfell beið lægri hlut gegn Álftanesi þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik tóku gestirnir stjórnina í þeim síðari og sigruðu að lokum með 13 stigum, 77-90. Jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta og þau skiptust á að leiða.…Lesa meira