Íþróttir

true

Firmamót framundan í Akraneshöll

Knattspyrnudómarafélag Akraness blæs til firmamóts í knattspyrnu laugardaginn 24. mars næstkomandi. Leikið verður í Akraneshöllinni og hefst mótið kl. 10:30. Fyrirkomulagið er þannig að leiknar verða 1×12 mínútna leikir, fimm leikmenn í hvoru liði inni á vellinum í einu, þar af einn markmaður, en að sjálfsögðu má hvert lið vera skipað fleirum. Skráning fer fram…Lesa meira

true

Fréttir frá Klifurfélagi ÍA

Um helgina fór fram Bikarmeistarmót Íslands í klifri. Þar kepptu klifrarar í C-flokki. Eftir erfiða undankeppni fóru sex stigahæstu keppendur áfram í úrslit og þar voru Skagamenn með fjórar stúlkur og tvo drengi. Eftir harða úrlistakeppni stal Skagamærin Þórkatla Þyrí Sturludóttir sigrinum með frábærri frammistöðu í síðustu leið mótsins. Tinna Rós Halldórsdóttir, Klifurfélag ÍA, hafnaði…Lesa meira

true

Gestirnir öflugri í seinni hálfleik

Snæfellingar máttu sætta sig við tap á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Staðan var jöfn í hálfleik en í seinni hálfleik réðu gestirnir ferðinni og sigruðu að lokum örugglega, 71-89. Hattarmenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með níu stigum eftir fyrsta leikhluta, 18-27.…Lesa meira

true

Lyftu sér upp í þriðja sæti

Skallagrímskonur lyftu sér upp í þriðja sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sterkum útisigri á Haukum í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu undirtökin stærstan hluta leiksins og sigruð að endingu með sjö stigum, 69-76. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og mjótt á mununum. Skallagrímskonur voru þó heldur ákveðnari og höfðu fjögurra stiga forskot eftir…Lesa meira

true

Stelpurnar í Slippfélaginu hæstar eftir fyrsta kvöld Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta keppniskvöldið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudaginn þegar keppt var í fjórgangi. Í deildinni keppa sex lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum en þrír knapar taka þátt í hverri keppnisgrein. Keppt er bæði til A-úrslita og B-úrslita en eins og tíðkast nú í mörgum deildum…Lesa meira

true

Setti Akranesmet í Lettlandi

Fimm sundmenn frá Sundfélagi Akraness eru þessa dagana á opnu meistaramóti í Lettlandi. Það eru þau Atli Vikar Ingimundarson, Brynhldur Traustadóttir, Enrique Snær Llorens, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir og Sindri Andreas Bjarnason. Alls taka 528 keppendur frá sjö löndum þátt í mótinu. Nú í morgun setti Enrique Snær Llorens nýtt Akranesmet í 400 m skriðsundi, sem…Lesa meira

true

Hársbreidd frá sigri

Skallagrímsmenn voru grátlega nálægt því að leggja Selfyssinga á útivelli í gær, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Um háspennuleik var að ræða þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Selfyssingar höfðu sigur með tveimur stigum, 82-80. Skallagrímsmenn voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum á meðan heimamenn fundu sig ekki. Borgnesingar…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti

Snæfellskonur biðu lægri hlut gegn Íslandsmeisturum Vals, 74-99, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Jafnt var á með liðunum í upphafsfjórðungnum. Snæfell komst í 7-2 áður en Valur náði forystunni og leiddi með örfáum stigum framan af fjórðungnum. Undir lok fyrsta leikhluta komst Snæfell yfir að…Lesa meira

true

Sóttu sigur á endasprettinum

Skallagrímskonur lyftu sér upp í fjórða sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sigri á Grindvíkingum á útivelli í gærkvöldi. Eftir jafnan og spennandi leik sóttu Borgnesingar tíu stiga sigur á lokamínútunum með góðum endaspretti, 66-76. Liðin skiptust á að leiða í fyrsta leikhluta. Skallagrímskonur leiddu 5-11 eftir fjögurra míntútna leik áður en Grindvíkingar komust…Lesa meira

true

Feðgar gerðu það gott á Íslandsmótinu

Íslandsmótið í keilu með forgjöf fór fram í Egilshöll dagana 22. til 23. febrúar síðastliðna. Félagar í Keilufélagi Akraness áttu þar titla að verja, en Ágústa K. Jónsdóttir og Guðjón Gunnarsson sigruðu á síðasta ári. Að þessu sinni var það hins vegar Matthías Leó Sigurðsson sem hélt forystu í forkeppninni og hafnaði að lokum í…Lesa meira