Íþróttir

true

Bjarki og félagar komust ekki áfram

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson og félagi hans Gísli Sveinbergsson luku á mánudag keppni á NCAA úrslitamótinu í bandaríska háskólagolfinu. Báðir leika þeir fyrir Kent State háskólann. Þeir félagar voru aðeins hársbreidd frá því að komast áfram í holukeppnina, en aðeins munað tveimur höggum á þeim og næsta liði sem fór áfram. Leiknir voru fjórir höggleikshringir og…Lesa meira

true

Keppt í Mjólkurbikarnum

Leikið verður í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í dag og á morgun. Þar munu þrjú Vesturlandslið etja kappi; ÍA, Víkingur Ó. og Kári. ÍA og Víkingur Ó. leika bæði í kvöld, miðvikudaginn 30. maí. ÍA mætir úrvalsdeildarliði Grindavíkur á útivelli og Víkingur Ó. heimsækir Fram. Báðir þessara leikja hefjast kl. 19:15. Á…Lesa meira

true

Kristján Örn og Arnar Smári áfram hjá Skallagrími

Kristján Örn Ómarsson og Arnar Smári Bjarnason hafa skrifað skrifað undir nýja samninga við Skallagrím og munu leika með liðinu á komandi leiktímabili í Domino‘s deild karla. Báðir eru þeir ungir og efnilegir leikmenn. Kristján Örn er 21 árs gamall og leikur stöðu framherja. Hann skoraði 5,7 stig og tók þrjú fráköst í leik með…Lesa meira

true

Unnur Ýr með þrennu í sigri ÍA

Skagakonur unnu góðan útisigur á Fjölni, 2-3, þegar liðin mættust í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Unnur Ýr Haraldsdóttir, fyrirliði ÍA, gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk liðsins í leiknum. Fyrri hálfleikur einkenndist af baráttu en ÍA liðið var heilt yfir sterkara. Skagakonur sköpuðu sér nokkur ágætis marktækifæri…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti sigur til Hafnarfjarðar

Víkingur Ó. vann góðan útisigur á Haukum þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu síðastliðinn föstudag. Leiknum lyktaði með einu marki gegn engu. Leikmenn Víkings voru mun ákveðnari í fyrri hálfleik en náðu ekki að skapa sér nein afgerandi marktækifæri. Mikil harka var í leiknum á köflum og menn hikuðu ekki við að…Lesa meira

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Njarðvík skildu jöfn, 2-2, í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á föstudag. Gestirnir fengu óskabyrjun og komust yfir strax á 4. mínútu leiksins. Njarðvíkingar komust inn í slaka sendingu Skagamanna á miðsvæðinu. Þeir léku sín á milli þar til Stefán Birgir Jóhannesson fékk boltann á vinstri kanti.…Lesa meira

true

Káramenn við toppinn

Káramenn gerðu góða ferð suður á Vatnsleysuströnd í gærkvöldi og sigruðu topplið Þróttar í Vogum með tveimur mörkum gegn engu. Með sigrinum lyftu Káramenn sér upp að hlið Þróttar á toppi 2. deildarinnar með níu stig eftir fjóra leiki. Athygli vekur að bæði eru liðin nýliðar í 2. deild, komu saman upp eftir síðasta leiktímabil.…Lesa meira

true

Davíð og Atli semja við Skallagrím

Körfuknattleiksmaðurinn Davíð Ásgeirsson hefur ákveðið að taka skóna af hillunni og leika með Skallagrími í Domino‘s deild karla næsta vetur. Hann tók sér hlé frá körfuknattleiksiðkun eftir þarsíðasta tímabil og lék því síðast með Skallagrími veturinn 2016-2017. Þá skoraði hann 3,5 stig og tók 2,1 frákast að meðaltali í leik. Þá hefur Atli Aðalsteinsson endurnýjað…Lesa meira

true

Fimleikafólk gerði það gott

Íslandsmót unglinga í 3.-5. flokki í fimleikum var haldið á Egilsstöðum um síðustu helgi. Um 700 keppendur úr 63 liðum tóku þátt í mótinu. Þar af fór fjöldi keppenda frá Fimleikafélagi Akraness sem keppti undir merkjum ÍA. Þrjú lið kepptu í 5. flokki og að móti loknu stóðu þau þrjú á verðlaunapallinum, með gull, silfur…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í bikarnum

Skagakonur féllu úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir 0-2 tap gegn Keflavík í gær. Leikið var um sæti í 16 liða úrslitum. Barátta einkenndi leikinn og mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Bæði liðin lögðu upp með að spila þétta vörn og gefa fá færi á sér. Enda var leikurinn fremur daufur hvað…Lesa meira