Íþróttir

true

Felldu niður síðari tvo keppnisdaga golfmóts

Til stóð að halda þriggja daga golfmót, Egils Gull mótið, á Garðavelli á Akranesi um síðustu helgi. Eftir fyrsta keppnisdag á föstudaginn ákvað mótsstjórn hins vegar að fengnu áliti og ráðgjöf frá Veðurstofu Íslands að fella niður annan og þriðja mótsdag. Veðurspá fyrir laugardaginn 18. maí var ekki ákjósanleg til golfleiks og því síður veðurspá…Lesa meira

true

Grátlegt tap Víkings Ó.

Liðsmenn Víkings Ó. máttu játa sig sigraða, 0-1, þegar þeir mættu Magna í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn var jafn og fjörlegur og úrslitin réðust ekki fyrr en í uppbótartíma. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og sköpuðu sér fullt af færum í fyrri hálfleik. Magnamenn skölluðu í þverslánna og yfir snemma…Lesa meira

true

Skagamenn höfðu mikla yfirburði

Skagamenn sigruðu Hauka örugglega, 3-1, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á föstudag. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn tróna á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leiki sumarsins. Ákefð og kraftur einkenndi leik Skagmanna á föstudaginn. Þeir voru mættu mun ákveðnari til leiks og fengu dauðafæri strax á 5.…Lesa meira

true

Eyjólfur og Bjarni áfram hjá Skallagrími

Eyjólfur Ásberg Halldórsson og Bjarni Guðmann Jónsson hafa endurnýjað samninga sína við körfuknattleiksdeild Skallagríms. Munu þeir leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild karla næsta vetur. Báðir voru þeir í lykilhlutverki hjá Skallagrími sem hampaði deildarmeistaratitli 1. deildar á liðnum vetri. „Er áframhaldandi vera þeirra í liðinu því mikið fagnaðarefni,“ segir á vef Skallagríms. Eyjólfur…Lesa meira

true

Bræður í raðir Skallagríms

Körfuknattleiksdeil Skallagríms hefur samið við bræðurna Björgvin og Bergþór Ríkharðssyni. Munu þeir leika með liðinu í Domino’s deildinni í körfuknattleik næsta vetur. Björgvin er 24 ára gamall og leikur stöðu bakvarðar. Hann gengur í raðir Skallagríms frá Tindastóli, þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár. Þar áður var hann á mála hjá ÍR. Á…Lesa meira

true

Iðnaðarsigur Kára

Kári vann 1-0 sigur á Gróttu þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Akraneshöllinni. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Fengu bæði lið nokkur ágætis tækifæri til að komast yfir sem ekki tókst að nýta og staðan var því markalaus í hléinu. Það var stál í stál…Lesa meira

true

Sanngjarn sigur ÍA í baráttuleik

ÍA sigraði ÍR, 1-0, fyrsta heimaleiknum í 1. deild kvenna í sumar. Leikið var í Akraneshöllinni í gær. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Akranesvelli en var færður undir þak vegna veðurs. Um mikinn baráttuleik var að ræða en heilt yfir voru Skagakonur sterkara liðið og sigurinn verður að teljast verðskuldaður. Skagakonur voru ákveðnari…Lesa meira

true

Sigurður Þór ráðinn framkvæmdastjóri KFÍA

Sigurður Þór Sigursteinsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra knattspyrnufélags ÍA. Tekur hann við starfinu af Huldu Birnu Baldursdóttur frá 1. ágúst næstkomandi. Sigurður er Skagamaður, uppalinn hjá ÍA og lék 106 leiki með meistaraflokki á árunum 1990 til 2001, auk þess að leika 16 leiki fyrir yngri landslið Íslands. „Það er mjög spennandi að…Lesa meira

true

Vestramenn hrepptu silfrið í 10. flokki drengja

Vestramenn, sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra, tapaði naumlega fyrir KR í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í 10. flokki drengja. Leikið var um síðustu helgi. Úrslitaleikurinn var hnífjafn og spennandi enda áttust þar við tvö frábær körfuknattleikslið. Úrslit leiksins réðust ekki fyrr en eftir framlengingu og þar höfðu KR-ingar betur með einu stigi, 74-75. Vestramenn urðu því…Lesa meira

true

Valdís Þóra kemst ekki á Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni lék í gær á úrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Leiknir voru tveir hringir á Buckinghamshire vellinum í Englandi og aðeins fjögur efstu sætin gáfu þátttökurétt á Opna bandaríska. Valdís Þóra lék vel á fyrri hring úrtökumótsins og var í 9. sæti að honum loknum á tveimur höggum…Lesa meira