Íþróttir

true

Fór fyrsta hringinn á pari

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hóf leik á Handa Vic Open mótinu í Ástralíu í nótt. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni. Valdís fór fyrri níu holur Beach vallarins á pari, þar sem hún fékk einn fugl og einn skolla. Á seinni hringnum kom hún sér einu höggi undir parið og hélt því…Lesa meira

true

Stórsigur Snæfells í Vesturlandsslagnum

Snæfell vann stórsigur á Skallagrími, 79-42, þegar liðin mættust í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur gáfu tóninn snemma leiks, voru sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu með átta stigum að honum loknum, 20-12. Skallagrímsliðið minnkaði muninn lítið eitt í upphafi annars leikhluta áður en Snæfellskonur tóku smá rispu og…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik á LPGA í nótt

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, keppir í bandarísku LPGA mótaröðinni í þessari viku. Mótið heitir Honda Civic Open og fer fram í Ástralíu dagana 7.-10. febrúar. Er þetta annað árið í röð sem Valdís tekur þátt í mótinu. Á síðasta ári hafnaði hún í 57. sæti eftir að hafa komist í gegnum niðurskurðinn.…Lesa meira

true

Bryndís Rún framlengir við ÍA

Knattspyrnukonan Bryndís Rún Þórólfsdóttir hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA. Skrifaði hún undir tveggja ára samning. Bryndís er fædd árið 1997 og leikur á miðju vallarins. Hún hefur verið ein af lykilleikmönnum í liði Skagakvenna undanfarin ár. Bryndís á að baki 76 leiki fyrir meistaraflokk ÍA og í þeim leikjum hefur hún skorað sex…Lesa meira

true

Áræðni og yfirvegun á lokamínútum skilaði Borgnesingum sigrinum

Skallagrímur sigraði Hauka með einu stigi, 80-79, þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta annar sigur Skallagríms í vikunni. Haukar höfðu yfirhöndina í upphafi leiks en Borgnesingar voru aldrei langt undan. Þeir komu sér þétt upp að hlið gestanna seint í fyrsta leikhluta og…Lesa meira

true

Taphrina Skallagríms á enda

Skallagrímsmenn bundu enda á 13 leikja taphrinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik þegar þeir lögðu Breiðablik á föstudagskvöld, 91-90. Var þetta fyrsti sigur Borgnesinga í deildinni síðan í október og því afar kærkominn. Skallagrímsmenn höfðu undirtökin í upphafi leiks en Blikar voru aldrei langt undan. Seint í leikhlutanum munaði aðeins einu stigi á liðunum…Lesa meira

true

Stórt tap Snæfellinga

Snæfellingar töpuðu stórt gegn Vestra, 105-63, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Ísafirði. Heimamenn komu mjög ákveðnir til leiks og ætluðu sér að gera út um leikinn strax í upphafsfjórðungnum. Staðan var 36-11 og Vestri kominn í vænlega stöðu eftir fyrsta leikhluta. Snæfellingar léku betur í öðrum…Lesa meira

true

Skagamenn sterkari allan tímann

Skagamenn unnu góðan sigur á Ármanni í 2. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi, 106-89. Leikið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Skagamenn voru sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu með 14 stigum að honum loknum, 31-17. Ármenningar komu aðeins til baka í öðrum leikhluta áður en Skagamenn tóku góða rispu og leiddu með 15…Lesa meira

true

Snæfellskonur fundu aldrei taktinn

Snæfell heimsótti KR í toppslag átjándu umferðar Domino‘s deildar kvenna á miðvikudagskvöld. Skemmst er frá því að segja að Snæfellskonur áttu ekki góðan dag. Þær fundu aldrei taktinn og töpuðu að lokum stórt, 90-54. Snæfellskonur byrjuðu leikinn illa og skoruðu aðeins níu stig allan fyrsta leikhlutann. Á meðan skoraði KR 19 stig og var komið…Lesa meira

true

Sigur eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímskonur unnu góðan sigur á Stjörnunni, 67-63, í fjörugum leik í Domino‘s deild kvenna á miðvikudagskvöld. Leikið var í Borganesi. Skallagrímskonur komu ákveðnar til leiks. Þær höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 18-15. Stjarnan minnkaði muninn í eitt stig í upphafi annars leikhluta. Borgarnesliðið náði góðum leikkafla og…Lesa meira