
Leikið var í átta liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímsmenn heimsóttu ÍR og þurftu að játa sig sigraða eftir æsispennandi leik, 86-79. Borgnesingar hafa því lokið þátttöku sinni í bikarnum í þetta skiptið. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en þá náðu heimamenn yfirhöndinni og leiddu með 13 stigum eftir upphafsfjórðunginn, 30-17.…Lesa meira








