
Fjórir leikir fara fram í kvöld klukkan 19:15 í fimmtu umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta. Meðal viðureigna kvöldsins er Vesturlandsslagur, en Skallagrímur heimsækir Snæfell í Hólminn. Fyrirfram er búist við hörkuleik enda staðan í deildinni býsna jöfn þegar fjórar umferðir eru búnar. Þannig munar einungis tveimur stigum á fyrsta og sjöunda sæti í deildinni.…Lesa meira








