
Síðastliðið föstudagskvöld fór fram lokakeppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í vetur þegar keppt var í flugaskeiði í gegnum höllina. Í keppni föstudagsins var það Konráð Valur Sveinsson frá Laugarvöllum sem sigraði næsta örugglega á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu. Tíminn var 4,89 sek. Í öðru sæti varð Styrmir Sæmundsson á Skjóna frá Stapa á tímanum 5,26 sek.…Lesa meira








