Íþróttir

true

Glæsilegt sumar hjá Eyju Rún á frjálsíþróttavellinum

Frjálsíþróttakonan Eyja Rún Gautadóttir úr Borgarfirði hefur átt afar gott keppnissumar og náð eftirtektarverðum árangri bæði á alþjóðlegum mótum og í Svíþjóð, þar sem hún býr og æfir. Fyrr í sumar tryggði Eyja Rún sér þátttökurétt á EM U18 í Rieti á Ítalíu þegar hún náði lágmarki í sjöþraut. Lágmarkið var 5.200 stig en Eyja…Lesa meira

true

Guðrún Karítas tryggði sér sæti í úrslitum EM

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, frá Vatnshömrum í Andakíl, tryggði sér í gær sæti í úrslitum sleggjukasts á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemst í úrslit á stórmóti. Guðrún Karítas kastaði 70,31 metra strax í fyrstu tilraun og reyndist það sjötta lengsta kast forkeppninnar. Tólf keppendur komust áfram í úrslitin.…Lesa meira

true

Sterkur heimasigur Víkings á Selfossi

Víkingur Ólafsvík vann góðan 2-0 sigur á Selfossi þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 16. umferð 2. deildar karla mánudaginn 10. ágúst. Víkingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og uppskáru mark á 32. mínútu þegar Ingvar Freyr Þorsteinsson kom boltanum í netið og heimamönnum í 1-0 forystu. Víkingur hafði skapað sér nokkur góð færi…Lesa meira

true

Skagamær leiðir Íslandsmótið í golfi eftir glæsilegan fyrsta hring

Skagamærin Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefur komið sér í kjörstöðu á Íslandsmótinu í golfi eftir frábæran fyrsta keppnishring. Elsa lék á fjórum höggum undir pari, setti jafnframt vallarmet og er með þriggja högga forskot á ríkjandi Íslandsmeistara, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Elsa, sem er 21 árs, er nýkomin heim eftir háskólanám og…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Sauðárkróki

ÍA sótti þrjú dýrmæt stig norður á Sauðárkrók þegar liðið lagði Tindastól 4:2 í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í gærkveldi. Með sigrinum færist ÍA upp í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig. Skagakonur náðu góðum tökum á leiknum í fyrri hálfleik. Alexa Maletis kom ÍA í 2:0 með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla um…Lesa meira

true

Valdís Helga með U16 ára landsliðinu á Evrópumót í Grikklandi

U16 ára landslið Íslands í körfuknattleik kvenna hefur keppni í B-deild Evrópumótsins í dag, fimmtudaginn 6. ágúst, þegar liðið mætir Noregi í Ioannina í Grikklandi. Á laugardag tekur íslenska liðið síðan á móti Bretlandi í síðari leik sínum í riðlakeppninni. Ísland leikur í F-riðli T3-hluta mótsins ásamt Noregi og Bretlandi. Takist liðinu að hafna í…Lesa meira

true

 Nýtt utanvegahlaup þreytt á Hellissandi um helgina

Sjónarhóll Trail Run verður haldið í fyrsta sinn á Hellissandi laugardaginn 8. ágúst. Að hlaupinu standa Ari Bent Ómarsson og Helga Jóhannsdóttir fyrir hönd Hlaupahóps Snæfellsbæjar, en þau hafa undanfarna mánuði unnið að undirbúningi þessa nýja utanvega hlaups. Hlaupið hefst við Útgerðina á Hellissandi klukkan 12 og liggur 21 kílómetra leið um Prestahraun og Eysteinsdalsleið…Lesa meira

true

Skagakonur sóttu stig í Hafnarfjörðinn í liðinni viku

ÍA gerði markalaust jafntefli við Hauka þegar liðin mættust á BIRTU vellinum í Hafnarfirði þriðjudaginn 28. júlí í Lengjudeild kvenna. Skagakonur sóttu þar mikilvægt stig á útivelli, en heimakonur fengu betri færi undir lok leiksins án þess að ná að brjóta ísinn. Eftir síðustu umferðir Lengjudeildarinnar situr ÍA í sjöunda sæti með 15 stig, aðeins…Lesa meira

true

Kári missti af dýrmætum stigum í toppbaráttunni

Kári og Kormákur/Hvöt gerðu 1:1 jafntefli þegar liðin mættust í 15. umferð 2. deildar karla í Akraneshöll miðvikudaginn 29. júlí sl. Úrslitin þýða að Káramenn sitja í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig, sjö stigum á eftir toppliði Hauka. Leikurinn var jafn og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu sín færi. Gestirnir komust yfir á…Lesa meira

true

Skallagrímur heldur sér í toppbaráttunni

Skallagrímur lagði SR að velli, 2:1, í 11. umferð A-riðils 5. deildar karla þriðjudaginn 26. júli sl. Með sigrinum heldur liðið öðru sæti riðilsins með 26 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Smára. Skallagrímur komst yfir á 17. mínútu þegar Guðjón Andri Gunnarsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks með glæsilegri aukaspyrnu beint í skeytin, óverjandi…Lesa meira