
Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, frá Vatnshömrum í Andakíl, tryggði sér í gær sæti í úrslitum sleggjukasts á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemst í úrslit á stórmóti. Guðrún Karítas kastaði 70,31 metra strax í fyrstu tilraun og reyndist það sjötta lengsta kast forkeppninnar. Tólf keppendur komust áfram í úrslitin.…Lesa meira








