Íþróttir

true

ÍA tapaði í Kópavoginum

ÍA og Breiðablik mættust í 17. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli og það voru heimamenn sem fóru með sigur af hólmi, 2-0. Var þetta fyrsti leikur liðsins undir stjórn nýs þjálfara, Jóns Þórs Haukssonar. Leikurinn byrjaði fjörlega og Blikar hefðu getað náð forystunni eftir aðeins þriggja mínútna…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn og Bergdís Fanney á leið í landsliðsverkefni

Nýverið voru tveir Skagamenn valdir í landsliðsverkefni fyrir Íslands hönd í knattspyrnu yngri landsliða. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 karlalandsliðsins valdi Tryggva Hrafn Haraldsson í hóp fyrir leik gegn Albaníu á Víkingsvelli mánudaginn 4. september. Leikurinn er í undankeppni fyrir Evrópumót U-21 árs landsliða sem haldið verður 2019 en þetta er fyrsti leikur Íslands í undankeppninni.…Lesa meira

true

Stefán Gísli bikarmeistari í skotfimi og á leið á Heimsmeistaramót

Síðastliðinn sunnudag varð Stefán Gísli Örlygsson, Skagamaður og meðlimur í Skotfélagi Akraness, bikarmeistari í leirdúfuskotfimi (skeet). Um er að ræða mótaröð á vegum Skotsambands Íslands og stóð Stefán uppi sem stigahæsti skotmaðurinn með 64 stig af 65 mögulegum. „Sumarið hefur gengið mjög vel hjá mér og ég er sáttur með það í heild. Ég hef…Lesa meira

true

Ármann Smári kemur Jón Þór til aðstoðar

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Ármann Smára Björnsson fyrrum leikmann ÍA sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Einnig munu þeir Þórður Guðjónsson og Sigurður Jónsson koma til með að aðstoða Jón Þór og Ármann í þeim verkefnum sem framundan eru. Eins og fram kom í fréttum í gær steig Gunnlaugur Jónsson til hliðar sem þjálfari liðsins…Lesa meira

true

Breiðablik vann öruggan sigur á Víkingum

Víkingur Ólafsvík hefur á undanförnum vikum verið að styrkja stöðu sína í deildinni eftir brösótta byrjun í sumar. Liðið mætti Breiðabliki í Ólafsvík í gær í sextándu umferð Pepsideildar en Víkingur hafði unnið tvo leiki í röð fyrir þann leik. Breiðablik hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið og…Lesa meira

true

Grátlegt tap ÍA gegn ÍBV

ÍA og ÍBV mættust í sannkölluðum botnslag í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn sátu fyrir leikinn á botni deildarinnar og Eyjamenn í sætinu fyrir ofan. Skagamenn þurftu nauðsynlega á sigri að halda en varð ekki að ósk sinni. ÍBV vann með einu marki gegn engu og staðan orðin…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti dýrmæt stig til Eyja

Víkingur Ólafsvík nældi sér í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttu Pepsi deildar karla með sterkum 0-1 útisigri á nýkrýndum bikarmeisturum ÍBV í gærkvöldi. Leikmenn Víkings voru sterkari framan af fyrri hálfleik og stjórnuðu gangi mála inni á vellinum. Heimamenn í ÍBV lágu hins vegar til baka og freistuðu þess að sækja hratt. Hvorugu liði tókst…Lesa meira

true

Íslandsmót golfklúbba að baki

Íslandsmót golfklúbba fór fram dagana 11. til 13. ágúst síðastliðna. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur í kvennaflokki. Keppni í 1. deild kvenna fór fram á Akranesi þar sem Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði sigri. Er þetta þriðja árið í röð sem GR sigrar fagnar Íslandsmeistaratitlinum í kvennaflokki og samtals hefur klúbburinn sigrað deildina…Lesa meira

true

Sextíu og átta ára á Heimsmeistaramóti í sundi

Guðmunda Ólöf Jónasdóttir úr Borgarnesi, eða Mumma Lóa, er nú stödd í Búdapest í Ungverjalandi á Heimsmeistaramótinu í garpasundi, Fina World Masters Championships. Um er að ræða sundmót fyrir eldri iðkenndur og er mótinu aldurskipt þar sem yngstu keppendurnir keppa í flokki 25-29 ára og þeir elstu í flokki 95-99 ára. Guðmunda er 68 ára…Lesa meira

true

Svekkjandi tap Skagamanna í Grindavík

Skagamenn fóru suður með sjó og mættu Grindavík í ótrúlegum leik í Pepsi deild karla í gærkvöldi. Leikurinn var opinn og skemmtilegur áhorfs frá fyrstu mínútu. Fullt af færum á báða bóga en að lokum fór svo að Grindvíkingar höfðu sigur, 3-2. Skagamenn fengu dauðafæri strax á 12. mínútu leiksins. Boltinn datt inn fyrir vörn…Lesa meira