Íþróttir

true

Stærsta tap ÍA í deildarleik í sögu félagsins

Skagamönnum hefur gengið afleitlega það sem af er tímabili í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í gærkvöldi mættu þeir toppliði Vals í þrettándu umferð deildarinnar. Fyrir leikinn bjuggust fáir við öðru en öruggum sigri Valsmanna og reyndist það vera raunin. Skagamenn töpuðu leiknum 6-0 og setti liðið þar með met þar sem ÍA hafði fram að…Lesa meira

true

Heiðrún Harpa snýr heim í Borgarnes

Körfuknattleiksdeild Skallagríms samdi á mánudag við Heiðrúnu Hörpu Ríkharðsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Leikmannahópur liðsins er því farinn að taka á sig lokamynd, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. Skallagríms. Heiðrúnu Hörpu þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum Skallagríms. Hún er 25 ára…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki inn á Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, verður ekki meðal keppenda á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hefst í Skotlandi á fimmtudaginn. Hún keppti á úrtökumóti fyrir risamótið í dag og lauk leik á 74 höggum, eða tveimur höggum yfir pari. Þegar þessi orð eru rituð deildi Valdís 41. sætinu með tíu öðrum kylfingum.…Lesa meira

true

Valdís Þóra keppir á úrtökumóti fyrir Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, leikur í dag á úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst í Skotlandi á fimmtudaginn. Úrtökumótið sem Valdís keppir á fer fram á Castle Course í St. Andrews í Skotlandi. Hún á rástíma kl. 11.00, eða eftir eina klukkustund. Aðeins leikinn einn 18 holu hringur í…Lesa meira

true

Bjóða út byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi er nú að undirbúa framkvæmdir við byggingu nýrrar frístundamiðstöðvar við Garðavöll. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Akraneskaupstað. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns samþykkti bæjarstjórn að fara af stað með verkefnið í samstarfi við golfklúbbinn. „Nú erum við að bjóða út steypuhluta byggingarinnar, þ.e. grunn og sökkla,…Lesa meira

true

Ungur miðvörður til ÍA

ÍA hefur náð samkomulagi við Viktor Örn Margeirsson og mun hann leika með liðinu út sumarið 2017 á lánssamningi frá Breiðabliki. Viktor er fæddur árið 1994 og leikur stöðu miðvarðar. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Augnabliki sumarið 2013 og sumarið eftir lék hann 19 leiki með HK í 1. deildinni. Hann gekk síðan til…Lesa meira

true

Körfuboltalandsleikur á Akranesi á laugardaginn

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig þessa dagana fyrir Evrópumótið í körfuknattleik sem hefst í Finnlandi 31. ágúst næstkomandi. Liður í undirbúningi liðsins eru tveir vináttulandsleikir gegn Belgum hér heima. Sá fyrri var í Kópavogi í gær en seinni leikurinn verður spilaður í á Akranesi laugardaginn 29. júlí. Leikið verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu kl.…Lesa meira

true

Ragnar Már til liðs við Kára

Í síðustu viku lánaði ÍA Ragnar Már Lárusson til Knattspyrnufélagsins Kára. Ragnar Már er tvítugur og getur leyst allar stöður fremst á vellinum. Ragnar fór ungur að árum til Englands og spilaði með unglingaliðum Brighton & Hove Albion en kom aftur heim á síðasta ári. Ragnar hefur fengið fá tækifæri með Skagamönnum í sumar og…Lesa meira

true

Víkingur tapaði fyrir toppliðinu

Einn leikur fór fram í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi þegar Víkingur Ó. mætti toppliði Vals á Ólafsvíkurvelli. Leikurinn fór fjörlega af stað og bæði lið fengu ágæt tækifæri til að skora á upphafsmínútunum sem ekki tókst að nýta. Valsmenn voru nálægt því að komast yfir á 15. mínútu þegar Andri Adolphsson átti…Lesa meira

true

Unglingalandsmót á Egilsstöðum um verslunarmannahelgi

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands er árviss viðburður á verslunarmannahelgi, ætlað ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára. Mótið var fyrst haldið á Dalvík árið 1992 og því verður mótið í ár 25 ára afmælismót. Jafnframt verður það tuttugasta árlega mótið, en fyrst um sinn var unglingalandsmót haldið á tveggja ára fresti. Mótshaldari Unglingalandsmóts UMFÍ 2017 er…Lesa meira