Íþróttir

true

Skallagrímur sigraði Vesturlandsslaginn

Fyrsta umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik hófst í gær. Sannkallaður Vesturlandsslagur var í Borgarnesi þar sem nýliðar Skallagríms tóku á móti ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Snæfells. Báðum liðum hefur verið spáð toppbaráttu í deildinni í vetur og leiksins var beðið með mikilli eftirvæntingu. Áhorfendur fjölmenntu á leikinn. Ekki var autt sæti í húsinu og…Lesa meira

true

Tokic hættir með Víkingi

Fotbolti.net greinir frá því að Hrovje Tokic, króatíski sóknarmaður Víkings Ólafsvíkur, muni ekki spila með liðinu á næstu leiktíð. Jónas Gestur Jónasson formaður Víkings staðfestir þetta. Ejub þjálfari hefur jafnframt sagt að mikilla breytinga sé að vænta á Víkingsliðinu fyrir næstu leiktíð. Tokic skoraði 9 mörk með liðinu í sumar og var þriðji markahæsti maður…Lesa meira

true

Garðar og Megan valin best á lokahófi ÍA

Lokahóf meistaraflokka og 2. flokks karla og kvenna hjá Knattspyrnufélaginu ÍA var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Gerðu knattspyrnumenn og aðstandendur vel við sig í mat og drykk og glöddust saman að keppnistímabilinu loknu. Þá voru valdir bestu leikmenn hvers liðs og þeim veittar viðurkenningar. Garðar Gunnlaugsson var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla og Tryggvi Hrafn Haraldsson…Lesa meira

true

Ármann Smári er leikmaður ársins

Ármann Smári Björnsson, fyrirliði ÍA, hefur verið kjörinn leikmaður ársins 2016 hjá Morgunblaðinu í Pepsi deild karla í knattspyrnu. Hann varð efstur í einkunnagjöf íþróttafréttamanna blaðsins sem gefa leikmönnum einkunn fyrir frammistöðu sína í hverjum einasta leik sem þeir taka þátt í á tímabilinu. Fyrirliðinn missti af síðustu þremur leikjum tímabilsins eftir að hann sleit…Lesa meira

true

Kanadískur framherji í Snæfell

Kanadamaðurinn Sefton Barrett mun leika með Snæfelli á komandi vetri í Domino‘s deild karla í körfuknattleik. Sefton er reynslumikill leikmaður, fæddur árið 1983. Hann er 196 sentímetrar á hæð og leikur stöðu framherja. Hann lék með Central Michigan háskólanum í bandaríska háskólaboltanum áður en hann hélt í atvinnumennsku. Á síðasta vetri lék hann með liði…Lesa meira

true

Vesturlandsliðunum spáð tveimur efstu sætunum

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða í Domino‘s deildum og 1. deildum karla og kvenna fyrir tímabilið 2016-2017 var kynnt á blaðamannafundi í hádeginu í dag. Ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Snæfells í körfuknattleik kvenna er spáð efsta sæti deildarinnar nokkuð afgerandi. Hlaut liðið 186 stig í kosningunni og hlýtur að teljast sigurstranglegt sem ríkjandi Íslandsmeistari. Athygli…Lesa meira

true

Skagamenn í fimmta sæti í Bikarkeppni SÍ

Um liðna helgi var Bikarmót Sundsambands Íslands haldin í Reykjanesbæ. Margir af sterkustu sundmönnum Íslands syntu á mótinu. Sundfélag Akraness sendi bæði kvenna- og karlalið og var gengi þeirra framar vonum en bæði liðin urðu í fimmta sæti. Hvað stigafjölda varðar er árangurinn á mótinu  í ár sá besti síðastliðin átta ár. Margir sundmennirnir bættu…Lesa meira

true

Grátlegt tap í lokaleiknum

ÍA tók á móti KR í lokaleik Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu síðasta föstudag. Skagakonur áttu ekki möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en hefðu með sigri getað tekið KR með sér niður í 1. deild. Sú varð hins vegar ekki raunin því eftir æsispennandi leik tókst gestunum að tryggja sér nauman sigur…Lesa meira

true

Snæfell sigraði keppnina um Meistara meistaranna

Íslands- og bikarmeistarar Snæfells í körfuknattleik kvenna sigruðu Grindavík þegar leikið var um Meistara meistaranna í gær. Í þeim leik mætast Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs, en þar sem Stykkishólmsliðið hampaði báðum titlunum var liðið úr úrslitum bikarkeppninnar fengið til að etja kappi við Snæfell. Nokkur haustbragur var á leik beggja liða framan af og…Lesa meira

true

Víkingur og ÍA áfram í deild þeirra bestu – Garðar fékk gullskóinn

Lokaumferð Pepsí deildar karla í knattspyrnu var spiluð í gær. Fyrir þessa umferð gat það orðið hlutskipti Víkings Ólafsvík eða Fylkis að falla í Inkassó deildina, þ.e. 1. deild. Þrátt fyrir 4:1 tap Víkings gegn Stjörnunni heldur liðið áfram í Pepsí deild þar sem Fylkir tapaði á sama tíma á útivelli 3-0 fyrir KR. Það…Lesa meira