Íþróttir

true

Borgnesingar byrjuðu á sigri

Skallagrímur sigraði Samherja, 4-0, í fyrsta leik liðsins í 4. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í Borgarnesi á þriðjudagskvöld. Borgnesingar mættu ákveðnir til leiks og komust yfir á 21. mínútu leiksins, þegar Magnús Helgi Sigurðsson komst einn í gegn og skoraði eftir góða sendingu frá Viktori Inga Jakobssyni. Magnús bætti síðan öðru marki við…Lesa meira

true

Dregið í bikarnum

Dregið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á laugardaginn. Leikið verður í Mjólkurbikar karla dagana 23.-25. júní næstkomandi. Þar voru ÍA og Víkingur Ó. í pottinum. Drátturinn fór á þá leið að ÍA mætir Kórdrengjum á útivelli og Víkingur Ó. tekur á móti nafna sínum úr…Lesa meira

true

Kári úr leik í bikarnum

Leiknismenn voru of stór biti fyrir Kára, en liðin mættust í annarri umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Kári leikur sem kunnugt er í 2. deild en Leiknir R. í deildinni fyrir ofan. Aðstæður voru erfiðar í Reykjavík þegar leikurinn fór fram, rigning og rok. Leiknismenn stjórnuðu gangi mála en Káramenn virtust eiga erfitt…Lesa meira

true

Heimasigur í fyrsta leik

Skagamenn lögðu KA, 3-1, í fyrsta leik sínum í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu þetta sumarið. Leikið var á Akranesvelli á í gær. Það voru gestirnir að norðan sem skoruðu fyrsta mark leiksins strax á 5. mínútu þegar Nökkvi Þeyr Þórisson slapp í gegnum vörn ÍA eftir skyndisókn. Skagamenn vildu meina að Nökkvi hafi…Lesa meira

true

Skagakonur völtuðu yfir ÍR

ÍA vann stórsigur á ÍR, 0-7, þegar liðin mættust í annarri umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Reykjavík á laugardaginn. Eins og markatalan ber með sér voru yfirburðir Skagakvenna algerir í leiknum. Þær komust yfir strax á 4. mínútu þegar Jaclyn Poucel skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Erla Karitas Jóhannesdóttir bætti öðru marki…Lesa meira

true

Rafeldsneyti verður framleitt á Grundartanga

Nú í hádeginu var undirritaður samstarfssamningur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Þróunarfélags Grundartanga um þróun og framleiðslu á rafeldsneyti. Það voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ólafur Adolfsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, sem undirrituðu samninginn. Hann felur í sér 50 milljóna króna styrk ríkisins við verkefnið sem unnið verður undir stjórn þróunarfélagsins. Verkefnið…Lesa meira

true

Sex piltar lánaðir úr Víkingi til Snæfells

Sex ungir og efnilegir leikmenn fóru á dögunum í lán frá Víkingi Ó til nágrannafélagsins Snæfells. Þetta voru þeir Anel Crnac, Brynjar Vilhjálmsson, Leó Örn Þrastarson, Sanjin Horoz, Sigurjón Kristinsson og Þráinn Sigtryggsson. Urðu þeir allir löglegir með Snæfelli í bikarleiknum sem spilaður var gegn Selfossi síðasta föstudagskvöld. Þetta var gert til að hjálpa piltunum…Lesa meira

true

Bikarkeppni Vesturlands framundan

Bikarkeppni Vesturlands – gæðingakeppni, verður haldin á félagssvæði Borgfirðings dagana 13.-14. júní næstkomandi. Er keppnin lokuð öðrum en félögum í hestamannafélögum á Vesturlandi; Dreyra, Borgfirðingi, Glaði og Snæfellingi. Mótið er jafnframt gæðingakeppni Borgfirðings, Snæfellings og Dreyra. Keppt verður í eftirtöldum greinum og flokkum: A flokkur gæðinga – 1. flokkur A flokkur gæðinga – 2. flokkur…Lesa meira

true

Stórsigur í bikarnum

Skagakonur unnu stórsigur á Hamri, 0-8, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Hveragerði í gær. Þess má geta að leikurinn var fyrsti formlegi keppnisleikurinn sem Hamar leikur í meistaraflokki kvenna. Eins og lokatölurnar benda til voru yfirburðir ÍA algjörir í leiknum. Skagakonur réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og…Lesa meira

true

Áfram eftir framlengingu

Káramenn eru komnir áfram í aðra umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir sigur á KV með þremur mörkum gegn engu. Leikið var í Reykjavík í gær. Mörkin létu heldur á sér standa í leiknum, því að loknum venjulegum leiktíma hafði ekkert verið skorað og því varð að grípa til framlengingar. Á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingar…Lesa meira