Íþróttir

true

Gunnar Einarsson þjálfar Kára

Knattspyrnufélagið Kári hefur samið við Gunnar Einarsson um að taka við þjálfun liðsins. Var hann valinn úr hópi átta umsækjenda. Eins og áður hefur verið greint frá var Jón Aðalsteinn Kristjánsson ráðinn þjálfari liðsins síðasta haust en þurfti að láta af störfum nú í vor. Káramenn hófu leit að þjálfara og hafa núna ráðið Gunnar…Lesa meira

true

Lindaskóli varði titilinn í Skólahreysti

Lindaskóli í Kópavogi sigraði Skólahreysti 2020 og vann þar með keppnina annað árið í röð. Úrslitakeppnin fór fram í Laugardalshöll í gær og var æsispennandi allt til enda og lauk Lindaskóli keppni með 43 stig. Heiðarskóli í Reykjanesbæ var í þriðja sæti í fyrra en hafnaði í öðru sæti í ár með 37 stig. Árbæjarskóli…Lesa meira

true

Sviptingar á fyrsta stórmóti ársins í golfi

Miklar sviptingar voru í gær á lokahring B-59 Hótel-mótsins í golfi sem spilað var á Garðavelli á Akranesi undir stjórn Golfklúbbsins Leynis. Mótið er eitt af sterkustu mótum sumarsins og allir fremstu spilarar landsins tóku þátt. Á mótinu voru leiknir þrír hringir, alls 54 holur, frá föstudegi til sunnudags. Gríðarleg spenna var á lokadegi mótsins…Lesa meira

true

Dregið úr takmörkun á íþróttastarfi

Frá og með morgundeginum verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í einu rými í stað 50 nú og heimilt verður að opna íþróttamannvirki og líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og aðra staði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis er jafnframt lagt til að engar sérstakar takmarkanir verði á íþróttastarfi en…Lesa meira

true

Valdís Þóra og Haraldur Franklín leiða fyrir lokadag

Hið sterka B59-Hotel mót í gólfi fer nú fram á Garðavelli á Akranesi. Mótið hófst á föstudaginn og lýkur í dag. Leiknar eru 54 holur, eða þrír keppnishringir, á jafn mörgum dögum. Það er Golfklúbburinn Leynir sem sér um framkvæmd mótsins. Mótið er fyrsta mótið af alls fimm á stigamótaröð Golfsambandsins á þessu keppnisári. Haraldur…Lesa meira

true

Kynntu nýja boli fyrir Sjóvá Kvennahlaup

Nýr og endurhugsaður Kvennahlaupsbolur var afhjúpaður í dag. „Bolurinn er tákn nýrra tíma, hugsaður frá grunni og slær tóninn fyrir nýja hugsun,“ segir í tilkynningu. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 13. júní, þrjátíu árum eftir að fyrsta kvennahlaupið var haldið. Árið 2020 er markmið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á…Lesa meira

true

Stigamótaröð GSÍ hefst á Garðavelli um helgina – bestu kylfingar landsins væntanlegir

Fyrsta mótið á stigamótaröð Golfsambands Íslands þetta sumarið verður leikið á Garðavelli á Akranesi dagana 22.-24. maí næstkomandi. Keppt verður í höggleik flokki karla og kvenna, 18 holur leiknar hvern dag en niðurskurður eftir annan hring. Það er Golfklúbburinn Leynir sem er mótshaldari. Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri klúbbsins, á von á sterku móti um helgina. „Allir…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar við golfvöllinn í Rifi

Félagar í Golfklúbbnum Jökli hófust handa við gerð nýs níu golfvallar í Rifi í síðustu viku. Byrjað var á að móta flatir og sá í þær. Jón Bjarki Jónatansson, formaður golfklúbbsins, segir að framkvæmdir fari vel af stað. „Við erum búnir að móta þrjár flatir og verðum í því í sumar að móta flatir og…Lesa meira

true

Landsliðskonan Embla Kristínardóttir í Skallagrím

Körfuknattleikskonan Embla Kristínardóttir mun leika með Skallagrími í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik næsta vetur. Greint var frá því á föstudag að Embla hefði samið við Skallagrím til næstu tveggja ára. Embla er 24 ára gömul og leikur stöðu bakvarðar. Hún gengur til liðs við Skallagrím frá Fjölni, þar sem hún lék síðasta vetur í…Lesa meira

true

Snæfell í þjálfaraleit

Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur auglýst eftir þjálfara fyrir meistaraflokka félagsins. Kvennalið Snæfells lék sem kunnugt er í Domino‘s deild kvenna síðasta vetur en karlarnir í 1. deildinni. Leitað er að einstaklingi með reynslu og menntun í körfuknattleiksþjálfun til að stýra meistaraflokksliðunum og eiga samstarf við yngri flokka félagsins. Þjálfaramál Snæfells hafa verið nokkuð í deiglunni undanfarið…Lesa meira