
Snæfell tapaði óvænt gegn Haukum, 73-67, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Leikið var á Ásvöllum í Hafnarfirði og var leikurinn jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Snæfell hafði heldur yfirhöndina framan af upphafsfjórðungnum, leiddu með fjórum stigum á kafla en Haukar jöfnuðu í 17-17 áður en leikhlutinn var úti.…Lesa meira








