
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað að álveri Norðuráls á Grundartanga laust eftir hálf sex í gærkvöldi vegna reyks frá aðveitustöð. Að sögn Þráins Ólafssonar slökkviliðsstjóra hafði gasrofi í stjórnrými stöðvarinnar sprungið og þurfti að reykræsta stjórnrýmið. „Engin hætta var á ferðum og enginn slasaðist, það er lykilatriði,“ segir Þráinn í samtali við Skessuhorn. „Viðbrögð…Lesa meira








