Íþróttir

true

Bikarhelgi að baki

Leikið var í 16 liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur komust bæði áfram í bikarkeppni kvenna, Skallagrímur fór áfram í bikarkeppni karla en ÍA féll úr leik. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 20. og 21. janúar næstkomandi.   Snæfell rústaði Þór Ak. Snæfellskonur rústuðu Þór Ak.…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu gegn Fjölni

Snæfell tók á móti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi þar til gestirnir sigu fram úr seint í leiknum og sigruðu að lokum með 17 stigum, 67-84. Fjölnir byrjaði leikinn betur og komst í 6-17 um miðjan upphafsfjórðunginn. Snæfell náði þá góðri rispu og minnkaði muninn í…Lesa meira

true

Baráttuglaðir Borgnesingar máttu játa sig sigraða

Skallagrímur mátti játa sig sigraðan gegn toppliði Tindastóls, 89-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var norður á Sauðárkróki. Tindastóll hafði heldur yfirhöndina framan af leik. Þeir byrjuðu betur og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-16. Skallagrímsmenn gáfu heimamönnum ekkert eftir í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn…Lesa meira

true

Valdís Þóra og Haraldur Franklín valin kylfingar ársins

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2018. Þeir eru Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Þetta er í annað skipti sem þau bæði hljóta þessa útnefningu. Valdís Þóra lék á sínu öðru tímabili í röð á LET Evrópumótaröðinni á árinu, en það er sterkasta mótaröð í…Lesa meira

true

Æsispennandi Vesturlandsslagur

Skallagrímur sigraði Snæfell, 90-87, í æsispennandi framlengdum Vesturlandsslag í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu. Liðin fylgdust að hvert fótmál í upphafsfjórðungnum og Skallagrímur leiddi með einu stigi að honum loknum, 28-27. Snæfell náði góðum spretti um miðjan annan leikhluta og…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi í kvöld

Skallagrímur tekur á móti Snæfelli í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum, eins og alltaf þegar þessi tvö lið mætast. Vesturlandsliðin hafa átt misjöfnu gengi að fagna í deildinni það sem af er vetri. Snæfell er í harðri toppbaráttu, hefur 18 stig í öðru sæti, jafn mörg…Lesa meira

true

Stofna Pílufélag Akraness

Stofnfundur Pílufélags Akraness verður haldinn í kvöld, miðvikudaginn 12. desember klukkan 20, í Keilusal Íþróttahússins við Vesturgötu. Á fundinum verður farið yfir starf þessa nýja félags, framtíðarsýn og tekið á móti hugmyndum fyrir starfið. Allir áhugasamir eru velkomnir, segir í tilkynningu frá stofnfélögum.Lesa meira

true

Misstu gestina fram úr sér á lokasprettinum

Skallagrímur og Valur áttust við í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi og var góð stemning á pöllunum að vanda. Leikurinn var jafn og spennandi en í lokafjórðungnum sigu gestirnir fram úr og tryggðu sér að lokum níu stiga sigur, 96-105. Leikurinn hófst á mikilli þriggja stiga skotsýningu beggja liða,…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Stjörnunni

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar eftir hörkuleik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Garðabæ í gær og lokatölur urðu 73-62, heimakonum í vil. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu 4-8 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá tók Stjarnan forystuna og leiddi 16-14 eftir upphafsfjórðunginn. Mikið jafnræði var með…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells í toppslagnum

Snæfell sigraði KR örugglega, 64-46, í toppslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Snæfell byrjaði leikinn mun betur og hélt KR í aðeins einu stigi fyrstu sex mínútur leiksins. Eftir það náðu gestirnir góðum spretti og minnkuðu muninn í 14-12 en Snæfellskonur leiddu 18-14 að fyrsta leikhluta loknum. Annar leikhluti…Lesa meira