Íþróttir

true

Samið verður við Work North um niðurrif strompsins

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaustaðar hefur fengið afhent minnisblað frá verkfræðistofunni Mannviti um væntanlegt niðurrif á strompinum á lóð Sementsverksmiðjunnar. Sviðsstjóra hefur verið falið að gera samkomulag við verktakafyrirtækið Work North ehf. um niðurrif hans. Gerð var könnun meðal bæjarbúa Akraness þess efnis hvort fella ætti strompinn eða varðveita hann. Reyndust 94% íbúa fylgjandi því að…Lesa meira

true

Skagasigur í skemmtilegum leik

ÍA og KV mættust í fjörugum og skemmtilegum leik í 2. deild karla í körfuknattleik á Akranesi á laugardagskvöld. Skagamenn byrjuðu betur og voru fljótlega komnir með tíu stiga forskot á gestina. Þeir héldu því forskoti meira og minna allan leikinn. Varnarleikur ÍA var góður í upphafi leiks og lagði það grunninn að sigrinum. Gestirnir…Lesa meira

true

Snæfell burstaði Stjörnuna

Snæfell vann stórsigur á Stjörnunni, 81-58, í tíundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Stjarnan byrjaði af miklum krafti, hreyfði boltann vel í sókninni og lék þétta vörn. Snæfellskonur fundu ekki taktinn í upphafsfjórðungnum og gestirnir höfðu afgerandi forskot að honum loknum, 11-23. Í öðrum leikhluta snerist taflið algjörlega…Lesa meira

true

Töluverð röskun á leikjaplani KKÍ

Vegna veðurs og færðar síðustu daga hefur orðið að gera talsverðar breytingar á leikjum í íslenska körfuboltanum. Tilkynning KKÍ er eftirfarandi: Domino´s deild kvenna: Frestaður leikur Skallagríms og Keflavíkur verður mánudaginn 3. desember kl. 19:15. Keflavík-Haukar sem var settur 5. desember verður nú 6. desember kl. 19:15. Snæfell-KR sem er settur 8. desember verður kl.…Lesa meira

true

Útvarp Akranes komið í loftið

Útsendingar Útvarps Akraness hófust í dag kl. 13:00 með þætti Ólafs Páls Gunnarssonar, Takið ykkur stöðu. Útsendingar standa þar til síðdegis á sunnudaginn með fjölbreyttri dagskrá þar sem er að finna allt frá sögulegu efni til tónlistar, barnaþátta, gríns og gamans. Að vanda er það Sundfélag Akraness sem stendur fyrir útsendingum Útvarps Akraness. Hafa þær…Lesa meira

true

Leik Skallagríms og Keflavíkur frestað

Leik Skallagríms og Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna, sem fara átti fram í Borgarnesi í kvöld, hefur verið frestað vegna veðurs. Leik Tindastóls og Fjölnis í 1. deild kvenna og leik Sindra og Hattar í 1. deild karla hefur einnig verið frestað af sömu ástæðu. Unnið er að því að finna leikjunum nýja leikdaga, að…Lesa meira

true

Ari hættur með Skallagrím

Ari Gunnarsson hefur látið af þjálfun kvennaliðs Skallagríms. Leikurinn gegn Breiðabliki sl. laugardag var því hans síðasti við stjórnvölinn. Leit er hafin að nýjum þjálfara, að því fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. „Meistaraflokksráð kvenna og Ari Gunnarsson hafa komist að samkomulagi um að Ari hætti þjálfun meistaraflokks kvenna. Meistaraflokksráð þakkar Ara fyrir störf…Lesa meira

true

Valdís Þóra í 38. sæti stigalistans

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, féll úr leik eftir tvo hringi á lokamóti Evrópumótaraðar kvenna sem fram fór á Spáni um helgina. Hún lék bæði fyrsta og annan hring á 76 höggum, eða á samtals tíu yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Til þess hefði hún þurft að leika á fimm…Lesa meira

true

Chaz með 53 stig í sigri ÍA

Skagamenn eru komnir aftur á sigurbraut í 2. deild karla í körfuknattleik eftir sigur á Leikni R. í sjöundu umferð deildarinnar. Leikur ÍA og Leiknis R. fór fram í Kennaraháskólanum í Reykjavík síðastliðið föstudagskvöld. Eftir að Leiknir tók forystuna kom ÍA til baka og vann að lokum 29 stiga sigur, 94-123 í leik þar sem…Lesa meira

true

Snæfellskonur fengu skell í Keflavík

Snæfell tapaði stórt gegn Keflavík, 82-55, þegar liðin mættust í níundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík á sunnudagskvöld. Keflavík náði yfirhöndinni snemma leiks og komust í 16-4 áður en Snæfell tók leikhlé. Eftir það náðu Snæfellskonur aðeins betri tökum á leiknum, voru grimmar fram á við og tókst að minnka…Lesa meira