Íþróttir

true

Skráning hafin á íþróttamót Faxa og Skugga

Mótanefnd hestamannafélaganna Faxa og Skugga stendur fyrir opnu íþróttamóti á félagssvæði Skugga í Borgarnesi dagana 6. og 7. maí. Mótið nefnist Arionbankamót Faxa og Skugga. Mótshald hefst klukkan 10 á laugardeginum. Keppt verður í Pollatölti en í Barnaflokki verður keppt í fjörgangi V2 og tölti T3. Í Unglingaflokki verður keppt í fjórgangi V2 og Tölti…Lesa meira

true

Víkingar fundu sig ekki gegn Val

Fyrstu leikir Pepsi deildar karla í knattspyrnu þetta sumarið voru leiknir í gær. Víkingur Ó. mætti Val á Valsvellinum í Reykjavík. Róðurinn var þungur fyrir Ólsara stærstan hluta leiksins og urðu þeir að lokum að sætta sig við tap, 2-0. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og gerðu sig líklega strax í upphafi en náðu…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu í fjörugum leik

Pepsi deild karla í knattspyrnu hófst í gær með þremur leikjum. Á Akranesi tók ÍA á móti Íslandsmeisturum FH og urðu Skagamenn að játa sig sigraða í fjörugum leik, 2-4. FH-ingar byrjuðu af krafti, fengu dauðafæri eftir aðeins þrjár mínútur eftir laglegt þríhyrningaspil í vítateig Skagamarnna en skotið fór yfir. Gestirnir voru mun sterkari í…Lesa meira

true

„Allt að smella saman á hárréttum tíma“

„Það er komin eftirvænting í hópnum eftir mótinu, það eina sem mætti lagast fyrir mót er veðrið. Það hefur ekki verið eins og við vildum helst hafa það, en það breytir því ekki að flautað verður til leiks á sunnudaginn og við hlökkum til,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn. Síðdegis á…Lesa meira

true

„Frábært þegar Pepsi deildin kemur í Ólafsvík“

„Mér líst bara vel á sumarið og við hlökkum til að mótið byrji. Vonandi verður bara gott veður í sumar, segir Ejub Purisevic, þjálfari karlaliðs Víkings Ó, léttur í bragði í samtali við Skessuhorn. Víkingur hefur leik í Pepsi deild karla í knattspyrnu sunnudaginn 30. apríl næstkomandi þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda. Undirbúningur er…Lesa meira

true

Spænskur miðjumaður til liðs við Víking

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur samið við spænska knattspyrnumanninn Alonso Sanchez Gonzalez um að leika með liðinu í sumar. Alonso er miðjumaður, fæddur árið 1990, en hann lék seinast með Raufoss í Noregi. Alonso æfði með Víkingi Ó. í æfingaferð á Spáni fyrr í mánuðinum og tók þar þátt í æfingaleikjum gegn Stjörnunni og Keflavík.Lesa meira

true

Snæfell missti af titlinum

Keflavík varð í gærkvöld Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna eftir sigur á Snæfelli í fjórða leik liðanna í úrslitaviðureigninni. Keflavík hafði yfirhöndina frá fyrstu mínútu og gaf aldrei færi á sér. Þær sigruðu að lokum 70-50 og viðureignina þar með 3-1. Það voru því Keflvíkingar sem lyftu Íslandsmeistarabikarnum að leik loknum.   Gangur leiksins Keflavík átti…Lesa meira

true

Inga Elín stefnir á að komast í sitt besta keppnisform

Inga Elín Cryer, sundkonan knáa frá Akranesi, hefur glímt við meiðsli og veikindi síðasta árið eða svo og lítið synt af þeim sökum. Engu að síður tók hún þátt í Íslandsmeistarmótinu í 50m laug sem fram fór í byrjun apríl. Þar hafnaði hún í öðru sæti í 50 og 100 metra flugsundi, háði meðal annars…Lesa meira

true

Kanínurnar hans Arnars hrepptu bronsið

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson, þjálfari Svendborg Rabbits, stýrði sínu liði til bronsverðlauna í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Kanínur Arnars höfðu öruggan sigur  á SISU í bronsleiknum sem fram fór á mánudagskvöld, 87-72, en sterk hefð er fyrir því í Danmörku að liðin sem falla úr leik í undanúrslitum úrslitakeppninnar leiki einn leik um bronsið. Eru þetta…Lesa meira

true

Fríar ferðir á leik Snæfells og Keflavíkur

Fjórði leikur úrslitaviðureignar Snæfells og Keflavíkur í körfuknattleik kvenna fer fram í Keflavík í kvöld. Snæfell er 2-1 undir í einvíginu og þarf á sigri að halda í kvöld til að knýja fram oddaleik. Körfuknattleiksdeild Snæfells, í samstarfi við fyrirtækin BB & synir og Snæfellsnes Excursions, býður Snæfellingum upp á fríar rútuferðir frá Stykkishólmi á…Lesa meira