Íþróttir

true

Siguroddur sigurvegari í einstaklingskeppni en Skáney/Leiknir í keppni liða

Síðastliðið föstudagskvöld fór fram lokakeppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í vetur þegar keppt var í flugaskeiði í gegnum höllina. Í keppni föstudagsins var það Konráð Valur Sveinsson frá Laugarvöllum sem sigraði næsta örugglega á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu. Tíminn var 4,89 sek. Í öðru sæti varð Styrmir Sæmundsson á Skjóna frá Stapa á tímanum 5,26 sek.…Lesa meira

true

Á verðlaunapall á Norðurlandamóti í hnefaleikum

Hnefaleikasamband Íslands sendi 17 manna landsliðshóp á Norðurlandamótið í Ólympískum hnefaleikum sem haldið var í Gilleleje í Danmörku helgina 31. mars – 2 apríl. Skagamennirnir Bjarni Þór Benediktsson keppandi í 64kg flokki ungmenna og Örnólfur Stefán Þorleifsson þjálfari voru meðal þátttakenda. Bjarni Þór lenti á móti mjög sterkum andstæðingi frá Svíþjóð. Sá er margfaldur Svíameistari…Lesa meira

true

ÍA semur við enskan miðjumann

Knattspyrnufélag ÍA hefur fengið til liðs við sig Rashid Yussuf frá pólska úrvalsdeildarliðinu Arka Gdynia og mun hann leika með liði Skagamanna í Pepsi deildinni í sumar. Rashid er 26 ára gamall Englendingur. Hann er örvfættur miðjumaður sem getur jafnframt leyst stöðu vinstri bakvarðar og vinstri kantmanns. „Hann kom á reynslu í síðustu viku og…Lesa meira

true

Valdís Þóra leikur í Frakklandi í dag

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á Terra Blanche Ladies Open mótinu í dag. Mótið er í Frakklandi og er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð Evrópu á eftir LET mótaröðinni. Hún hefur undanfarið verið við æfingar á Spáni og mun nýta mótið sem hefst í dag til að…Lesa meira

true

Skallagrímur stal heimaleikjaréttinum

Skallagrímur hafði sigur gegn Keflavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík í gærkvöldi. Eftir nokkuð jafnan leik sem heimakonur leiddu naumlega komust Skallagrímskonur yfir í lokafjórðungnum og stálu sigrinum eftir æsispennandi lokamínútur. Lokatölur urðu 68-70, Skallagrími í vil.   Gangur leiksins Keflvíkingar höfðu heldur yfirhöndina í…Lesa meira

true

Snæfellskonur komnar með yfirhöndina

Snæfell bar sigurorð af Stjörnunni í gær í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Dominos deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur leiksins urðu 93-78 sem fram fór í Stykkishólmi og leiddu Snæfellskonur allan leikinn. Atkvæðamest Snæfellskvenna í leiknum var Aaryn Ellenberg sem átti stórleik. Hún skoraði 42 stig, hirti 14 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Næstar komu…Lesa meira

true

Birta hélt hreinu í sigri gegn Svíum

U17 ára landslið kvenna í knattspyrnu er þessa dagana statt í Portúgal þar sem leikinn verður milliriðill fyrir EM 2017 sem fara mun fram í Tékklandi í maí. Rétt í þessu lauk fyrsta leik liðsins í milliriðlinum, en Ísland bar sigurorð af Svíum með einu marki gegn engu. Birta Guðlaugsdóttir, markvörður Víkings Ó. var í…Lesa meira

true

Aaryn best í seinni hlutanum

Í gærkvöldi voru veitt verðlaun fyrir seinni hluta Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Tvö efstu lið deildarinnar, Snæfell og Keflavík, hrepptu öll einstaklingsverðlaunin. Aaryn Ellenberg var valin besti leikmaðurinn og Ingi Þór Steinþórsson besti þjálfarinn. Aaryn var að sjálfsögðu einnig valin í úrvalslið síðari hluta tímabilsins ásamt liðsfélaga sínum Berglindi Gunnarsdóttur, Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur úr Skallagrími…Lesa meira

true

Kraftlyftingakappar af Akranesi sigursælir um helgina

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fór fram í Reykjavík á laugardaginn var. Samhliða fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna og öldunga, einnig í klassískum lyftingum. Sex lyftingakappar frá Kraftlyftingafélagi Akraness tóku þátt í mótunum. Skemmst er frá því að segja að kraftlyftingafólk af Akranesi sneri heim með fimm Íslandsmeistaratitla og ein bronsverðlaun.   Þrjú Íslandsmet Einars Á Íslandsmeistarmótinu…Lesa meira

true

Arnór Sigurðsson til IFK Norrköping

Sænska úrvalsdeildarliðið IFK Norrköping hefur keypt Skagamanninn Arnór Sigurðsson frá ÍA. Arnóri var boðið til reynslu hjá sænska liðinu síðasta haust auk þess sem hann fór í æfingabúðir liðsins í Portúgal í byrjun þessa árs. Nú hefur IFK Norrköping keypt Arnór, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við liðið. „Við erum gríðarlega ánægðir fyrir Arnórs…Lesa meira