Íþróttir

true

SamVest sendi lið til keppni á Bikarmóti FSÍ

Við í SamVest erum afar stolt yfir því að hafa sent lið til Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir 15 ára og yngri, sem fram fór sunnudaginn 12. mars í Laugardalshöllinni. Bikarkeppnin er liðakeppni í frjálsum íþróttum, þar sem keppt er í sjö greinum í piltaflokki og sjö greinum í stúlknaflokki, auk boðhlaups. Keppendur eru 15 ára…Lesa meira

true

Brimrún Eir tryggði sér silfur á Íslandsmeistaramóti

Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri lauk um síðustu helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Eins og áður fjölmenntu ÍA klifrarar á mótið og stóðu sig með prýði. Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var hún í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147…Lesa meira

true

Þrír frá ÍA í U21 landsliðið

Skagamennirnir Aron Ingi Kristinsson, Steinar Þorsteinsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson hafa verið valdir í hóp U21 landsliðs karla í knattspyrnu sem heldur til Georgíu 20. mars næstkomandi. Mun liðið leika tvo æfingaleiki við heimamenn, dagana 22. og 25. mars. Að því loknu verður haldið til Ítalíu þar sem liðið mætir Sádi-Aröbum 28. mars. „Við óskum…Lesa meira

true

ÍA eignaðist þrefaldan og tvöfaldan Íslandsmeistara

Badmintonspilarar frá Akranesi gerðu það gott á Íslandsmóti unglinga sem haldið var í húsnæði Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur um helgina. Alls tóku 138 spilarar frá tíu félögum þátt í mótinu. Skagastúlkan María Rún Ellertsdóttir náði þeim merka áfanga á mótinu að verða þrefaldur Íslandsmeistari. Hún spilaði í U13 ára flokki og varð Íslandsmeistari í einliðaleik,…Lesa meira

true

Stúlkur í FIMA sigruðu í fyrsta flokki

WOW Bikarmótið í hópfimleikum fór fram um helgina í Ásgarði í Garðabæ. Var umsjón þess í höndum fimleikadeildar Stjörnunnar. Á mótinu er keppt í 2. flokki, 1. flokki og meistaraflokki og taldi það til stiga í GK deildarkeppninni. Mótið náði hápunkti þegar öll bestu lið Fimleikasambandsins mættu til leiks síðdegis í gær. Fimleikafélag Akraness sendi…Lesa meira

true

Tap í lokaleiknum hjá ÍA

ÍA mætti Fjölni í lokaleik 1. deildar karla í körfuknattleik að kvöldi síðasta föstudags. Leikið var á Akranesi. Með sigri gat Fjölnir tryggt sér 2. sæti deildarinnar og þar með heimavallarrétt í úrslitakeppninni, sama hversu langt þeir ná í þeirri keppni. Skagamenn höfðu hins vegar að litlu að keppa, myndu enda í 8. sæti deildarinnar…Lesa meira

true

Matthías setti fjögur ný Íslandsmet

Um helgina fór fram forkeppni á Íslandsmóti einstaklinga í keilu með forgjöf í Egilshöll í Reykjavík. Fjögur Íslandsmet voru sett í mótinu í gær. Matthías Leó Sigurðsson ÍA spilaði fjóra leiki þennan dag og setti Íslandsmet í einum, tveimur, þremur og fjórum leikjum. Íslandsmetin eru sett í 5. flokki en í þeim eru leikmenn 10…Lesa meira

true

Keiluspilarar af Akranesi gerðu það gott á Íslandsmóti

Íslandsmót unglinga í keilu fór fram helgina 4.-5. mars. Til leiks mættu 37 ungmenni frá fjórum keilufélögum; Keilufélagi Akraness, Keilufélagi Reykjavíkur, Þór og ÍR. Fyrirkomulagið er þannig að keppt er til úrslita í 1.-3. flokki ef fleiri en fjórir eru skráðir til leiks. Ekki er keppt til úrslita í yngri flokkum heldur raðast þeir eftir…Lesa meira

true

Ármann Smári leggur skóna á hilluna

Ármann Smári Björnsson fyrirliði meistaraflokks karla hjá ÍA til margra ára hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun ekki spila fyrir liðið í sumar. Ármann Smári meiddist illa undir lok síðustu leiktíðar þegar hann sleit hásin í leik gegn KR. Hann var staðráðinn í því að snúa aftur á völlinn í sumar, eins…Lesa meira

true

Misstu leikinn frá sér eftir hléið

Snæfell og Þór Ak. mættust í síðustu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var á Akrueyri. Sem kunnugt er varð fall Snæfells óumflýjanlegt í febrúar en Þór háði harða baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Eftir dapran fyrri hálfleik beggja liða gerðu heimamenn út um leikinn með góðum kafla í þriðja leikhluta. Þeir…Lesa meira