
Snæfellingar máttu sætta sig við tap gegn Hamri, 105-99, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Snæfell hafði undirtökin stærstan hluta leiksins en heimamenn náðu forystunni í fjórða leikhluta og tókst að halda henni til leiksloka. Snæfell byrjaði leikinn betur og hafði sex stiga forystu eftir nokkurra mínútna leik, 8-14. Heimamenn…Lesa meira








