Fréttir

true

Snæfell fer stigalaust í jólafrí

Síðasta umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik fyrir jólafrí var leikin í gærkvöldi. Botnlið Snæfells tók á móti nýliðum Þórs frá Akureyri. Gestirnir höfðu yfirhöndina allan leikinn og ekki fyrr en í lokafjórðungnum að Snæfellingar komust á almennilegt skrið og í námunda við gestina. En það var heldur seint í rassinn gripið og voru það…Lesa meira

true

Strætó hækkar verð um áramótin

Ný gjaldskrá Strætó bs mun taka gildi 3. janúar næstkomandi. Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verða 440 kr., sem er hækkun um 4,8%, en staðgreiðsla og stakt fargjald í appinu fyrir börn yngri en 18 ára, aldraða og öryrkja verða óbreytt. Önnur fargjaldaform eins og farmiðar og kort hækka í kringum 4%. Í…Lesa meira

true

Brekkubæjarskóli vel skreyttur

Árleg hurðaskreytingakeppni á unglingastigi Brekkubæjarskóla á Akranesi var haldin í síðustu viku. Keppnin var sem fyrr stór hluti af jólaundirbúningi unglinganna, sem að vanda lögðu mikinn metnað í skreytingarnar. Hurðarnar eru skreyttar af nemendum sjálfum, sem sjá alfarið um þá vinnu sem felst í því að skreyta. Líkt og undanfarin ár var keppnin spennandi enda…Lesa meira

true

Margrét Eir heldur hátíðlega jólatónleika í Reykholti

Jólatónleikar eru að margra mati ómissandi þáttur um aðventuna. Söngkonan Margrét Eir hefur um árabil verið ein þeirra sem hefur hlýjað landsmönnum um hjartaræturnar á aðventunni með fallegum söng sínum, meðal annars með þátttöku í Frostrósum um árabil. Sunnudaginn 18. desember næstkomandi mun Margrét Eir halda jólatónleika í Reykholtskirkju í fyrsta sinn. Tónleikarnir verða þeir…Lesa meira

true

Blómasetrið komið í jólabúninginn

Það er ys og þys í Blómasetrinu Kaffi-Kyrrð í gamla sýslumannshúsinu við Skúlagötu 13 í Borgarnesi þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti þar við nýlega. Þar rekur Svava Víglundsdóttir og fjölskylda hennar blómabúð, gjafavöruverslun og notalegt kaffihús er innaf versluninni. Samhliða því að gestir koma í verslunina eru ferðamenn sífellt að reka inn nefið enda margir á…Lesa meira

true

Lesbókin Café verður opnuð við Akratorg innan tíðar

Þær Hafdís Bergsdóttir og Hildur Björnsdóttir hafa selt rekstur kaffihússins Skökkin Café við Kirkjubraut 2 á Akranesi. Kaupendur eru Christel Björg Rudolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson. Hyggjast þau innan tíðar opna nýtt kaffihús á sama stað við Akratorg undir nafninu Lesbókin Café, en nafnið Lesbókin hefur lengi loðað við húsið. „Við ætlum bara að…Lesa meira

true

Kaup sveitarsjóðs á íbúðarhúsi hluti af starfslokasamningi

„Að gefnu tilefni telur sveitarstjórn rétt að fram komi að Hvalfjarðarsveit hefur keypt fasteignina að Lækjarmel 7 í Hvalfjarðarsveit,“ segir í tilkynningu sem birt var í dag á vef Hvalfjarðarsveitar. Tilefni þessarar yfirlýsingar er umræða á spjallsíðu íbúa sveitarfélagsins þar sem nokkrir íbúar hafa lýst furðu sinni á að sveitarsjóður hafi keypt einbýlishús sem fyrrum…Lesa meira

true

Útvarp Óðal ómar frá morgni til kvölds

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, stendur yfir þessa vikuna. Dagskráin hófst  á mánudagsmorgun og stendur alla daga til klukkan 23. Henni lýkur svo síðdegis á morgun með kveðju útvarpsstjóra og veislu fyrir alla þá sem að útvarpinu hafa komið. Dagskrá Útvarps Óðals er fjölbreytt og koma nemendur úr öllum árgöngum skólans að dagskrárgerð.…Lesa meira

true

Gott rekstrarár hjá Golfklúbbnum Leyni

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi var haldinn 6. desember síðastliðinn. Þórður Emil Ólafsson formaður fór yfir skýrslu og starf klúbbsins á liðnu ári, gjaldkeri fór yfir reikninga og kynnti rekstraráætlun ársins 2017. Rekstur GL gekk vel rekstrarárið 2016 og var veltan tæpar 80 milljónir samanborið við tæpar 90 milljónir árið 2015. Felst munurinn í að…Lesa meira

true

Varamaður tekur sæti á þingi

Hafdís Gunnarsdóttir, sem skipar fjórða sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, tók nú í vikunni sæti á þingi. Leysir hún Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur af í veikindaforföllum dóttur hennar. Hafdís býr á Ísafirði og starfar sem forstöðumaður liðveislu hjá Ísafjarðarbæ.Lesa meira