Fréttir

true

Skagamenn syntu á NM í Kolding

Tveir sundgarpar frá Akranesi kepptu á Norðurlandameistaramótinu í Kolding um liðna helgi. Þetta eru þau Ágúst Júlíusson, sundmaður úr Sundfélagi Akraness og Inga Elín Cryer frá Akranesi sem nú æfir og syndir með Ægi. Ágúst komst í úrslit í 50 m flugsundi á tímanum 24,76 sek. og bætti um betur í úrslitasundinu sem hann lauk…Lesa meira

true

Líður best einum á ferð úti í kyrrlátri náttúrunni

Reynir Katrínarson segir að það hafi verið af praktískum ástæðum að hann fór að kenna sig við móður sína. „Ég hef í tvígang búið í Noregi og þar átti fólk erfitt með að bera fram „Sigurðarson.“ Ég ákvað því að breyta nafninu og þannig hefur það verið æ síðan. Reynir er fjölhæfur listamaður, nuddari og…Lesa meira

true

Álykta um sundlaugarmál

Stjórn Sundfélags Akraness telur nauðsynlegt að koma á framfæri við bæjarstjórn Akraneskaupstaðar athugasemdum í framhaldi af kynningarfundi framkvæmdaráðs 5. desember síðastliðinn. Þar segir m.a.: „Það er gleðiefni að bæjarfélagið skuli nú áforma að hefja nýjan kafla í viðhaldi og uppbyggingu  íþróttamannvirkja á Akranesi. Þannig verði stuðlað að því að börn og ungmenni hafi viðunandi aðstöðu…Lesa meira

true

Gunnhildur er körfuknattleikskona ársins 2016

Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Snæfells, var valin körfuknattleikskona ársins 2016 þegar KKÍ valdi körfuknattleiksfólks ársins, en valið hefur verið tvískipt síðan árið 1998. Gunnhildur var fyrirliði Snæfells sem vann tvöfalt, bæði Íslands- og bikarmeistaratitil, á síðasta keppnistímabili og jafnframt þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð. Þá er hún einn mikilvægasti leikmaður íslenska landsliðsins og hefur verið um nokkurt…Lesa meira

true

Árni Snær með slitið krossband

Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson meiddist illa í æfingaleik með ÍA gegn HK á dögunum þegar hann sleit krossband í hné. Mun hann af þeim sökum þurfa að gangast undir aðgerð sem dagsett er skömmu fyrir jól, 22. desember. Óvíst er hvort hann getur leikið með Skagamönnum í Pepsi deild karla næsta sumar. Hann heldur þó…Lesa meira

true

Skorað á sjúkraflutningamann að (byrja) safna hári

Það er ýmislegt sem sjúkraflutningamenn bardúsa á vöktum þegar blessunarlega er lítið að gera í vinnunni hjá þeim. Nú hefur Fannar Sólbjartsson skorað á vinnufélaga sinn Skarphéðinn Magnússon á Akranesi að safna hári í a.m.k. þrjá mánuði. Þeirri áskorun mun Skarpi taka ef hann fær þúsund “like” á Facebook síðu hans. Þar sem þetta eru…Lesa meira

true

Vel var mætt á Bókaveislu í Snæfellsbæ

Árleg Bókaveisla Grunnskóla Snæfellsbæjar fór fram á Klifi þriðjudaginn 6. desember. Bókaveislan er eitt af átthagafræðiverkefnum 10. bekkjar í skólanum. Þar er áhersla lögð á að tengja saman skólann og samfélagið. Verkefnið er styrkt af Snæfellsbæ og menningarnefnd. Á bókaveislunni lásu höfundar úr nýútkomnum bókum sínum og nemendur 10. bekkjar kynntu höfunda og seldu veitingar…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri um tíma við Hafnarfjall

Á undan skilum lægðar í vestri verður hlýnandi veður með slagveðursrigningu og hvössum vindi af suðaustri einkum hér á Vesturlandi. Á veginum við Hafnarfjall er reiknað er með hviðum allt að 35-40 m/s fram yfir hádegi í dag. Þá er búist við hvassviðri um tíma víðar á Vesturlandi og fólk hvatt til að fylgjast með…Lesa meira

true

Allt að þriðjungi meiri umferð í nóvember

Vegagerðin birtir í fyrsta skipti í liðinni viku samanburð á umferðinni á Snæfellsnesi, Vestfjörðum og Austfjörðum. Þar kemur fram að umferð um Snæfellsnes jókst um 25% í nóvember og útlit er fyrir að umferðin á svæðinu í ár verði 28% meiri en hún var í fyrra. Heldur minni aukning er á hinum svæðunum en mjög…Lesa meira

true

Útskrift úr Fisktækniskólanum

Síðastliðinn föstudag var önnur útskrift úr gæðastjórnunarnámi því sem Fisktækniskóli Íslands er að bjóða. Í hópnum voru meðal annarra nemendur af Vesturlandi, en þeir koma frá Akranesi og Snæfellsnesi. Alls útskrifuðust tíu úr náminu að þessu sinni, en námsframboðið er allt sniðið að þörfum fiskvinnslunnar. Gæðastjóri hefur umsjón með uppbyggingu, rekstri og þróun gæðakerfis í…Lesa meira