Fréttir

true

Uppsjávarveiðunum lokið á þessu ári

Bæði Venus NS og Víkingur AK hafa nú lokið veiðum á þessum ári. Skipin sigldu með kolmunnaafla af Færeyjamiðum í vikunni sem leið og lönduðu á Vopnafirði. Fyrst var Venus með 2.600 tonn og síðan Víkingur um helgina með 2.700 tonn, eða fullfermi. „Þar með er uppsjávarveiðum skipa HB Granda lokið á þessu ári,“ segir…Lesa meira

true

Söfnun hafin fyrir unga konu ættaða af Vesturlandi

Nú er í gangi fjársöfnun til stuðnings ungri konu sem á ættir sínar að rekja í Borgarnes og Dali. Hún heitir Ástríður Ólafsdóttir, kölluð Ásta. Foreldrar hennar eru Ólafur Ingi Ólafsson og Erla Sveinbjörg Hauksdóttir. Ásta þjáist af afar sjaldgæfu sjálfsofnæmi og við því hefur ekki fundist lækning. Ásta hefur frá því í ágúst síðastliðnum…Lesa meira

true

Snæfell lá gegn Íslandsmeisturunum

Botnlið Snæfells mætti KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Vesturbæ Reykjavíkur og skemmst er frá því að segja að leikmenn Snæfells áttu aldrei möguleika gegn Íslandsmeisturunum. Þeir rétt náðu að halda í við KR-inga í upphafi leiksins en eftir það réðu heimamenn gangi leiksins og unnu að lokum sannfærandi…Lesa meira

true

Vestlenskur milljónamæringur gæti keypt 74 þúsund kókflöskur

Hann datt heldur betur í lukkupottinn karlmaðurinn sem keypti sér lottómiða í N1 í Borgarnesi í lok nóvember. Íslensk getspá greinir frá því að vinningshafinn stoppi oft á leið sinni hjá N1 til að kaupa sér kók og ákvað að þessu sinni að taka með einn Lottómiða. Næst þegar hann átti leið hjá bað hann…Lesa meira

true

Valdís Þóra leikur á úrtökumóti í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, tekur nú þátt í úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina, en mótið fer fram í Marokkó. Nú er fyrsta hring af fjórum lokið á mótinu og spilaði Valdís Þóra á 76 höggum eða 4 höggum yfir pari og er jöfn í 17. sæti þegar nokkrir kylfingar eiga eftir að…Lesa meira

true

Engey prufusiglt við Tyrklandsstrendur

Eins og fram hefur komið er HB Grandi með þrjá nýja ískfisktogara í smíðum í skipasmíðastöðinni Celíktrans í Tyrklandi, þeirri sömu og framleiddu uppsjávarveiðiskipin Venus og Víking. Fyrsti togarinn, Engey RE, verður afhentur kaupendum fyrir jólin og var skipinu prufusiglt í þessari viku og reyndist vel. Með í för voru meðal annarra skipstjórinn á Engey…Lesa meira

true

Opna fyrir umsóknir til ljósleiðaravæðingar

Fjarskiptasjóður hefur opnað fyrir umsóknir vegna verkefnisins Ísland ljóstengt sem er landsátak stjórnvalda í uppbyggingu ljósleiðarakerfa utan markaðssvæða í dreifbýli. Verkefnið hófst formlega síðastliðið vor með 450 milljón króna styrkveitingu fjarskiptasjóðs til 14 sveitarfélaga sem hlutskörpust urðu í samkeppni um þann styrk. Önnur fjármögnun kemur frá þeim sem tengjast sveitarfélögunum sjálfum og fjarskiptafyrirtækjum eftir atvikum.…Lesa meira

true

Laufabrauðsgerð og gleði á Brákarhlíð

Það var glatt á hjalla hjá íbúum og starfsfólki Brákarhlíðar í Borgarnesi í gær þegar starfsfólk á Hvammi boðaði til laufabrauðsútskurðar og baksturs. Heimilisfólk og dagdvalarfólk tók virkan þátt ásamt því að nokkrir ættingjar og fyrrverandi starfsmenn Brákarhlíðar mættu til þátttöku. Það er óhætt að segja að gleðin hafi verið við völd eins og myndirnar…Lesa meira

true

Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík taka enn á ný höndum saman um Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Meðal verðlaunahafa frá því 2005, þegar verðlaunin voru fyrst afhent, má nefna Landsnámssetrið í…Lesa meira

true

Spölur kaupir vélsóp til að þrífa göngin

Fyrirtækið Spölur ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, hefur fest kaup á og tekið í notkun nýjan vélsóp sem verður notaður til að vinna gegn rykmyndun í göngunum. Rykmyndun er sérlega hröð að vetrinum þegar margir vegfarendur aka bílum á negldum hjólbörðum. Sem kunnugt er eru göngin þrifin með stórvirkum ryksugu- og þvottabílum að hausti…Lesa meira